Collector
Vilja tryggja að skattalækkun skili sér að fullu til neytenda | Collector
Vilja tryggja að skattalækkun skili sér að fullu til neytenda
Fréttastofa RÚV

Vilja tryggja að skattalækkun skili sér að fullu til neytenda

Samkeppniseftirlitið hefur óskað eftir gögnum frá olíufélögunum til að leggja mat á hvort lækkun virðisaukaskatts hafi skilað sér til neytenda. Virðisaukaskattur á eldsneyti var lækkaður 1. maí úr 24 prósentum í 11 til að bregðast við verðhækkunum á heimsmarkaði. Breytingin er tímabundin og gildir út ágúst. Samkeppniseftirlitinu var gert að fylgjast með því að lækkunin skilaði sér til neytenda. Í nýlegri samantekt ASÍ kemur fram að lækkunin hafi skilað sér að fullu hjá öllum félögum nema Costco. Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir eitt mál vera til skoðunar en vill ekki upplýsa hvaða félag það varðar. „Varðandi lækkunina 1. maí þá erum við að bíða skýringa frá einu félagi til þess að geta sagt með allri vissu að lækkunin hafi átt sér stað þá. En það er ekki eina verkefnið heldur þurfum við líka að fylgjast með álagningunni. Hvernig hún er að þróast þannig að hún sé ásættanlega með tilliti til vilja löggjafans að þessi lækkun skili sér til neytenda,“ segir Páll Gunnar. Eftirlitið hefur í þessu skyni fundað með fulltrúum olíufélaganna til að afla frekari upplýsinga. „Við erum að afla ítarlegra gagna frá félögunum. Um birgðastöðu, um forsendurnar í innkaupum, um árstíðarsveiflur og fleira til þess að við getum áttað okkur á hvað er eðlileg álagning við þessar aðstæður,“ segir Páll Gunnar. „Við höfum áhyggjur af þróuninni síðustu ár. Við höfum talað um það í talsverðan tíma að það eru fákeppnisaðstæður á þessum markaði. Það er í sjálfu sér ekki nýtt. Þær aðstæður eru til þess fallnar að slæva samkeppni,“ segir Páll Gunnar. Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB segir svigrúm til að lækka verð enn frekar. „Við erum að sjá það í öllum nágrannalöndum okkar að eldsneyti hefur verið að lækka undanfarna daga og vikur. Þetta er reyndar mjög hverfull heimur eins og við vitum. Það er ein frétt í dag og önnur á morgun. Þannig að það hafa verið miklar sveiflur á heimsmarkaði,“ segir Runólfur. „En við sjáum að það er undirliggjandi frekari lækkun núna. Þar að auki er það mjög áberandi að olíufélögin hafa síðustu árin verið að snarauka álagningu bæði á bensín og díselolíu. Þannig að neytendur eiga inni frekari lækkun eins og við höfum ítrekað lagt áherslu á,“ segir Runólfur.

Go to News Site