Collector
Hvalfjarðarsveit fagnar 20 ára afmæli | Collector
Hvalfjarðarsveit fagnar 20 ára afmæli
Fréttastofa RÚV

Hvalfjarðarsveit fagnar 20 ára afmæli

Að sjálfsögðu var afmælissöngurinn sunginn í stjórnsýsluhúsinu en þar var börnum úr leik- og grunnskólanum boðið sérstaklega að koma og svo var opið hús fyrir aðra íbúa nú síðdegis með afmælisveitingum. Margir voru í Hvalfjarðarpeysum í tilefni dagsins. „Hvalfjarðarsveit er frábært sveitarfélag, hér eru alveg dásamlegir íbúar og hér er gott að búa og ég hvet, sem flesta að koma og kíkja í Hvalfjarðarsveitina,” segir Andrea Ír Arnarsdóttir, fráfarandi oddviti Hvalfjarðarsveitar. 840 íbúar búa í Hvalfjarðarsveit. En hvað með sameiningu við önnur sveitarfélög eins og Akranes eða Borgarbyggð, er eitthvað þannig í umræðunni? „Það var nú sett viðhorfskönnun í síðustu sveitarstjórnarkosningum og það kom alveg skýr vilji að það ætti ekki að sameina,” segir Andrea. Hvalfjarðarsveit fagnar 20 ára afmæli sínu í dag en það varð til á þessum degi við sameiningu fjögurra sveitahreppa sunnan Skarðsheiðar. Enginn áhugi er hjá íbúum sveitarfélagsins á að sameinast öðrum sveitarfélögum. Kvenfélagskonur í Kvenfélaginu Lillju sáu um veitingar dagsins en félagið er nýorðið 90 ára gamalt en í því eru 19 konur. „Þetta er sveitarfélag bænda og blandaðrar byggðar þéttbýlis. Hér er mikil atvinna og hér er mikil gróska. Hér er líka sterk og mikil menning og fallegir sögustaðir þannig að þetta er dásamlegt hérað, Hvalfjarðarsveit,” segir Haraldur Benediktsson, væntanlegur oddviti Hvalfjarðarsveitar. En það var ekki bara afmælið í dag því sveitarfélagið fékk líka viðurkenningu frá UNICEF fyrir að vera barnvænt samfélag en það kom í hlut Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF, að afhenda ungmennaráði sveitarfélagsins viðurkenninguna, sem mikil ánægja er með enda elska íbúarnir sveitarfélagið sitt.

Go to News Site