Collector
„Sumar af konunum í The Real Housewives eru mikilvægustu konurnar í lífi mínu“ | Collector
„Sumar af konunum í The Real Housewives eru mikilvægustu konurnar í lífi mínu“
Fréttastofa RÚV

„Sumar af konunum í The Real Housewives eru mikilvægustu konurnar í lífi mínu“

„Það er svo gaman að fylgjast með fólki sem lifir í allt öðrum raunveruleika en þú sjálfur,“ segja þær Elín og Birta aðspurðar hvað geri raunveruleikasjónvarp svona áhugavert. „Maður sér yfirleitt í gegnum raunveruleikasjónvarp sem er byggt á handriti,“ segja þær og tala um að þær séu ekki aðdáendur slíkra þátta. Elín er mikill aðdáandi The Real Housewives og segir sumar konurnar í þáttunum vera þær mikilvægustu í sínu lífi. Birta Líf hefur fylgst með Keeping Up With The Kardashians í fjölda ára. Kourtney Kardashian eignaðist son sinn, Mason, nánast í beinni útsendingu, segir Birta og bætir við að hann sé lifandi dæmi um alvöru Truman show . Þú getur horft á áhugaverða umræðu um raunveruleikaþætti í spilaranum hér að ofan. Miðstöðin er nýr þáttur um dægurmenningu alla fimmtudaga á RÚV.

Go to News Site