Fréttastofa RÚV
Samfylkingin er stærsti flokkurinn í nýjum þjóðarpúlsi Gallups með 28,4% fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn næststærstur með 23,5%. Samfylkingin hefur verið stærsti flokkurinn í öllum könnunum Gallups frá því í janúar 2023. En ekki er allt sem sýnist. Ef skyggnst er bak við tjöldin og svörunum skipt í tvennt: fyrir og eftir sveitarstjórnarkosningarnar, sem fóru fram 16. maí, koma athyglisverðar niðurstöður í ljós. Sjálfstæðisflokkurinn er stærri en Samfylkingin eftir sveitarstjórnarkosningarnar. Á því tímabili mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 26,0% og 24,9%. Fyrir sveitarstjórnarkosningar var Samfylkingin með 30,6% en Sjálfstæðisflokkurinn 21,9%. Með þeim fyrirvara að þetta eru ekki niðurstöður yfir heilan mánuð má þó segja að þetta sé í fyrsta sinn í rúm þrjú ár sem Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærsti flokkurinn. Sjálfstæðisflokkurinn vann mikinn sigur í sveitarstjórnarkosningum 16. maí og endaði í meirihluta í 18 af 20 stærstu sveitarfélögum landsins, þar af öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Svo virðist sem blá bylgjan í sveitarstjórnum sé að skila sér á þing. Fylgi eins flokks til viðbótar tekur marktækum breytingum fyrir og eftir kosningar. Það er Flokkur fólksins. Flokkurinn mælist með 4,5% fylgi fyrir kosningar en 3,2% eftir kosningar. Flokkurinn bauð aðeins fram í Reykjavík og missti þar sinn eina borgarfulltrúa.
Go to News Site