Collector
Hnignunarbandalag eða vernd gegn ofríki stórvelda? | Collector
Hnignunarbandalag eða vernd gegn ofríki stórvelda?
Fréttastofa RÚV

Hnignunarbandalag eða vernd gegn ofríki stórvelda?

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, lýsir Evrópusambandinu sem hnignunarbandalagi sem hafi farið úr einni krísu í aðra. Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að framganga Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, hótanir hans í garð Grænlendinga og tilheyrandi tollastríð sé allt til marks um að alþjóðakerfinu sé ógnað. Smáríkjum eins og Íslandi standi ógn af heimi þar sem stórveldi fara sínu fram, misnoti viðskiptabandalög og virðiskeðjur. Í Silfrinu í kvöld var tekist á um aðildarviðræður við Evrópusambandið, samningsstöðu Íslands og ekki síst hvort breytt staða í heimsmálum kalli á breytta nálgun. „Heimurinn er á fleygiferð. Við þurfum að svara því hvernig við skipum okkar málum út frá hagsmunum Íslands,“ sagði Dagur. Sigmundur Davíð sagði aftur á móti að líta þyrfti á mannkynssöguna í heildarsamhengi. Stórir atburðir hefðu riðið yfir alla tíð. Sama hvað hefði gengið á hefði fullveldið sannað gildi sitt. Þjóðaratkvæðagreiðslan um aðildarviðræður við ESB var til umræðu í Silfri kvöldsins, þar á meðal samningsstaða Íslands og hvort breytt staða í heimsmálum kalli á breytta nálgun. Auðlindir og þjóðarhagur eða hagur fárra Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, telur að þessar vendingar nægi ekki til að hafa áhrif á afstöðu til Evrópusambandsins. Benti hún á aðild að Evrópusambandinu hefði ekki komið til alvarlegrar umræðu í nágrannaríkjunum Noregi, Færeyjum og Grænlandi, þrátt fyrir þetta. „Við erum auðlindahagkerfi eins og Noregur. Ég tel að hagsmunum okkar sé betur borgið utan Evrópusambandsins.“ Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sagðist trúa því að mikil sóknarfæri fælust í viðræðum við Evrópusambandið. „Það er lykilatriði, af því við erum að tala um framtíð þjóðarinnar, að inni í þeirri vinnu séu ekki hagsmunir hinna fáu, alveg óháð því hversu fáir og valdamiklir þeir eru, heldur almannahagsmunir.“

Go to News Site