Fréttastofa RÚV
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir flokkinn mótfallinn því að börn verði vistuð í lokuð úrræðum . Hann segir mikilvægt að hlusta á þær áskoranir sem þinginu hafa borist frá hinum ýmsu samtökum um að frelsissvipta börn ekki á brottfararstöð. Framsóknarflokkurinn hafi ávallt hugsað um hagsmuni barna og að þau eigi að njóta vafans. „Mér finnst mikilvægt að taka undir þessi sjónarmið og benda á að fyrr í nefndinni þegar við vorum að fjalla um málið þá komu fram hugmyndir frá Flóttamannastofnun sem meðal annars sem benti á önnur úrræði.“ Úrræðin sem um ræðir eru meðal annars handlagning persónuskilríkja og ferðagagna, ábyrgð þriðja aðila, skylda til að tilkynna um aðsetur og breytingar þar á, fjárhagslegr trygging sem fæst endurgreidd við brottför og rafrænt eftirlit svo unnt sé að fylgjast með ferðum viðkomandi. Sigurður Ingi minnist einnig á sérstakt opið fjölskylduúrræði þar sem fjölskyldur gætu dvalið í opnu umhverfi á meðan brottflutningur er undirbúinn. „Við erum einfaldlega að segja: setjum börn ekki í lokuð úrræði.“ Önnur umræða um frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð hófst á Alþingi í dag. Frumvarpið sætti töluverðri gagnrýni í umsagnarferli, meðal annars frá mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins, Rauða krossinum, Barnaheillum og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Gagnrýnin sneri einkum að atriðum er vörðuðu vistun barna og fjölskyldna. Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar gerir nokkrar breytingar sem ætlað er að koma til móts við þær athugasemdir. Fjölskyldur verða vistaðar í sérstöku húsnæði sem verður algjörlega aðskilið vistarverum einstaklinga, þar sem þær munu hafa að lágmarki afmarkað svefnrými, þótt þær kunni að deila annarri aðstöðu, svo sem salernis- og eldunaraðstöðu. Þingmenn Sjálfstæðiflokks í nefndinni vilja ganga lengra og leggja til að barnafjölskyldur fái einnig tómstundasvæði innan- og utandyra, auk salernis- og eldunaraðstöðu. Einnig bætist við ákvæði um að börn skuli eiga kost á að taka þátt í leikjum og afþreyingu sem hentar þeirra aldri. Ótal önnur úrræði í boði Tótla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, gerir einnig talsverðar athugasemdir við málið og segir börn ekki eiga heima í varðhaldi alveg sama hvað það sé kallað. „Það þarf virkilega sérstakar ástæður til þess að tryggja öryggi barna eða annarra til þess að það sé hægt að setja þau í varðhald. Þetta er ekki bara skoðun okkar heldur skyldur sem við höfum tekið upp með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna,“ sagði Tótla í sjónvarpsfréttum í kvöld. Tótla segist ítrekað hafa bent allsherjar- og menntamálanefnd á alls konar lausnir í þessum málum. Hún nefnir meðal annars rafrænt eftirlit og tilkynningarskyldur. Aukinheldur talar hún um að flóttamannanefnd Sameinuðu þjóðanna sé búin að benda á ótal úrræði. Formaður Framsóknarflokksins tekur undir gagnrýni mannréttindasamtaka vegna fyrirhugaðra brottvísunarúrræða. Hann segir mikilvægt að hlusta á áskoranir sem þinginu hafa borist um að frelsissvipta börn ekki.
Go to News Site