Collector
Líbanir segja Hezbollah hafa fallist á kröfur Trumps um að hætta árásum á Ísrael | Collector
Líbanir segja Hezbollah hafa fallist á kröfur Trumps um að hætta árásum á Ísrael
Fréttastofa RÚV

Líbanir segja Hezbollah hafa fallist á kröfur Trumps um að hætta árásum á Ísrael

Stjórnvöld í Líbanon segja leiðtoga Hezbollah hafa samþykkt tillögu forseta Bandaríkjanna um að hætta árásum á Ísrael í skiptum fyrir að Ísraelsher láti ekki verða af atlögum á Suður-Beirút. Þetta kemur fram í tilkynningu líbanska sendiráðsins í Washington eftir að Donald Trump forseti sagðist hafa átt uppbyggilegt samtal við forystu Hezbollah og Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels. Hann kveðst hafa sannfært báða um að draga úr stigmögnun átakanna. Engar ísraelskar sveitir haldi inn í suðurhluta Beirút og þeim sem þangað stefndu verði snúið til baka að sögn Trumps. „Vonandi hætta Ísraelar og Hezbollah átökum að eilífu,“ skrifaði Trump á Truth Social. Hassan Fadlallah, þingmaður Hezbollah, segir hreyfinguna krefjast algers vopnahlés um gervallt Líbanon. Netanjahú kveðst hafa tjáð Trump að linni ekki árásum Hezbollah á Ísrael verði svarað af öllu afli. Þungar atlögur Ísraelshers á bækistöðvar Hezbollah í Líbanon og sókn landhersins inn í suðurhlutann síðustu daga hafa valdið því að mögulegur samningur Bandaríkjanna og Írans er í uppnámi. Trump sagðist í viðtali við ABC-fréttastöðina í kvöld telja samning um framlengingu vopnahlés við Íran og opnun Hormússunds verða tilbúinn innan viku.

Go to News Site