Collector
Minnst níu drepnir í stórfelldum loftárásum víða um land | Collector
Minnst níu drepnir í stórfelldum loftárásum víða um land
Fréttastofa RÚV

Minnst níu drepnir í stórfelldum loftárásum víða um land

Rússlandsher hefur í kvöld og nótt gert stórfelldar loftárásir víðs vegar um Úkraínu, sem kostað hafa minnst níu mannslíf, og loftvarnarkerfi landsins hafa verið virkjuð. Vitað er að fjórir týndu lífi þegar langdrægum eldflaugum var beint gegn höfuðborginni Kyiv að sögn Tymur Tkachenko, forsvarsmanns hermálayfirvalda í borginni. Háværar sprengingar hafi kveðið við, eldar logi víða, meðal annars í níu hæða íbúðahúsi, og hátt í hundrað særst í árásunum. Börn eru meðal hinna særðu. Yfirvöld í Dnípró, fjórðu stærstu borg landsins, segja minnst fimm hafa verið drepna í árásunum. Borgarstjórinn í Kyiv, Vitali Klitschko, hvetur íbúa til að halda sig í loftvarnarbyrgjum meðan árásir standa yfir. Forsetinn Volodymyr Zelensky varaði í gærmorgun við að umfangsmiklar árásir Rússa gætu verið yfirvofandi, viku eftir þunga atlögu þar sem Rússlandsher beitti hinni voldugu Oreshnik-stýriflaug. Fréttin var uppfærð með fjölda látinna og særðra.

Go to News Site