Fréttastofa RÚV
Sigtryggur Baldursson hefur verið í fjölda hljómsveita, til dæmis Þeyr, Kukl og Sykurmolunum en svo þekkja auðvitað allir hliðarsjálf hans Bogomil Font, sem hefur sungið sig inn í íslensku þjóðarsálina, bæði með Milljónamæringunum og Greiningardeildinni. Hann var gestur Mannlega þáttarins á Rás 1 þar sem hann sagði þeim Gunnari Hanssyni og Guðmundi Pálssyni meðal annars frá frá hljómsveitinni Hattímas, knattspyrnuferlinum og tilurð Bogomils Font. Þegar Sigtryggur tyllti sér niður í hljóðstofu Rásar 1 hljómaði lagið Sjóddu frekar egg með Bogomil Font og Greiningardeildinni. Bogomil Font, hliðarsjálf Sigtryggs Baldurssonar, varð til í gríni þegar hljómsveitin Sykurmolarnir lagði upp laupana eftir að hafa sigrað heiminn. Grínið fékk óvænta vigt þegar fyrsta platan sló í gegn og Bogomil hefur glatt landsmenn síðan. Um texta lagsins segir Sigtryggur: „Hvunndagurinn felur í sér mikinn galdur og einföldu hlutirnir gefa lífinu gildi. Þar er falið mikið innihald, í hvunndagsgaldrinum. Oft er mikil sáluhjálp í því að sjóða sér egg, rista sér brauð og klappa hundi, ef maður á hann.“ Sigtryggur var framkvæmdastjóri ÚTÓN, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar frá 2012. ÚTÓN sameinaðist svo Tónlistarmiðstöð fyrir tveimur árum og þá minnkaði Sigtryggur við sig, en nú er hann í hálfu starfi hjá Tónlistarmiðstöð en auk þess nýtir hann kraftana í að spila og búa til tónlist. Bankaði og barði á allt í eldhúsinu á matrósarfötunum Það má segja að tónlistarferill Sigtryggs hafi hafist í eldhúsinu þegar hann var lítill drengur í matrósarfötum að berja taktinn á potta og pönnur og raunar allt sem hann gat lamið í. „Pabba langaði að spila á trommur en hann gerði ekkert úr því, heldur gerði það svolítið í gegnum mig. Ég var farinn að banka og berja á ansi margt,“ segir hann sposkur. Faðir hans gaf honum fyrstu trommuna þegar Sigtryggur var tíu ára en hann kolféll fyrir hljóðfærinu tveimur árum síðar í Færeyjum, þar sem hann var í fótboltaferð með félögum sínum í Breiðabliki. Ég sá froðufellandi síðhærða rokkara að þjösnast á gömlum slögurum, þá allt í einu kviknaði á peru í kollinum á mér og ég hugsaði þetta gæti verið gaman. Það var ákveðið að stofna hljómsveit í fimmta flokki Breiðabliks í knattspyrnu. Þegar hópurinn var spurður hver kynni á trommur rétti Sigtryggur upp hönd, þótt það væri ekki alveg sannleikanum samkvæmt. Náði að sannfæra gaurana um að hann væri upprennandi trommuleikari Þegar heim var komið byrjaði hann að lemja trommur af áfergju í kjallaranum á æskuheimilinu til að geta sannað sig fyrir nýju hljómsveitinni. Ég settist inn í kjallara í svona viku og náði bíti sem heitir Nights on broadway með Beegees sem er svolítið kúl bít. Þannig náði ég að sannfæra gaurana um að ég væri upprennandi trommuleikari. Þarna var ég tólf ára. Á þessum tíma var það þó fótboltinn sem átti hug hans allan. „Maður vaknaði á morgnanna og spilaði fótbolta og spilaði svo bara fótbolta eins og brjálæðingur. Fótboltinn átti hug minn allan þar til ég fór að fikta í trommunum.“ Of lélegir til að gera ábreiður svo þeir byrjuðu að semja Um 15 ára aldur hætti hann í fótbolta og stofnaði unglingahljómsveit í Kópavogi sem hét Hattimas. Nafnið var fengið að láni hjá Matthíasi Hlífari Mogensen, bróður Birgis Mogensen sem var með Sigtryggi í sveitinni. Matthías er myndlistarmaður og listamannanafn hans, Hattimas, heillaði unglingsdrengina. Við Austurbæjarvillingarnir í Hattimas sömdum alla okkar eigin músík, tókum ekkert cover. En það var aðallega því við byrjuðum vorum við svo lélegir að við tókum langan tíma í að æfa upp lög eftir aðra að við fórum að semja eigin. Fossvogsgengið varð að Þeysurum Á sumrin starfaði Sigtryggur í skógræktarfélaginu í Fossvogi þar sem hann kynntist meðal annars Hilmari Agnarssyni sem var bassaleikari. Hann er að stofna nýja hljómsveit og ég byrja að spila með þeim 16 ára, þegar Hattimas leggur upp laupana. Ég fór að spila með félögunum í Fossvogsgenginu og það verður að Þeysurum. Eftir það varð ekki aftur snúið. „Þá finn ég að þetta er eitthvað sem mig langar virkilega að takast á við. Ég fór að pæla mikið í þessu og að fara út fyrir þægindarammann.“ Varð til í skrýtnu gríni Sykurmolarnir voru stofnaðir árið 1986 í framhaldi af stofnun Smekkleysu. Og eftir að Sykurmolarnir hættu varð Bogomil Font til. Sigtryggur og félagar hans í hljómsveitinni voru miklir aðdáendur Hauks Morthens heitins og þau heilluðust af sjarma hans. Haukur varð að hitti hjá okkur í Sykurmolunum sem sjarmörinn sem hann var. Hann var líka svo frábær söngvari. Og Bogomil Font, hliðarsjálf Sigtryggs, varð til undir miklum áhrifum frá Hauki. „Hann var mikill áhrifavaldur á Bogomil, sem verður til í skrýtnu lókal gríni.“ „Bogomil sprakk í andlitið á mér“ Bogomil Font var því verkefni sem byrjaði sem grín og vatt heldur betur upp á sig enda er hann enn að senda frá sér tónlist og koma fram. Sigtryggur bendir þó á að Sykurmolarnir hafi einnig byrjað sem grín. Við vorum með metnaðarlegt fólk í Smekkleysu sem var ungt listafólk sem langaði að breyta listalífinu á Íslandi. Við ákváðum að búa til popphljómsveit til að meika monní. Það var kaldhæðni í því. Við ákváðum að gera popptónlist sem sprakk svolítið í andlitið á okkur eins og Bogomil sprakk í andlitið á mér. Platan átti að vera tekin upp á balli og vera bara skrall Bogomil og Milljónamæringarnir átti að vera partíband og fyrsta platan, Ekki þessi leiðindi, var tekin upp á dansleik í Hlégarði í Mosfellsbæ. Ég hafði engar ambisjónir fyrir upptökum, fyrir mér var þetta bara kóverband sem væri bara grín og gaman. Ég sættist á að gera plötu ef hún væri bara grín og gaman og tekin upp á balli, væri bara skrall. En platan sló óvænt og ærlega í gegn. „Það kom mér mjög á óvart en var bara fyndið og skemmtilegt.“ Gellur eru bestar Og nú dregur til tíðinda því fyrsta platan með Bogomil Font sem er aðeins með frumsömdum lögum er væntanleg. „Það er eitt lag eftir mig en aðallega lög eftir Braga Valdimars. Það kemur svo gott stöff frá honum.“ Bogomil Font, hliðarsjálf Sigtryggs Baldurssonar, varð til í gríni þegar hljómsveitin Sykurmolarnir lagði upp laupana eftir að hafa sigrað heiminn. Grínið fékk óvænta vigt þegar fyrsta platan sló í gegn og Bogomil hefur glatt landsmenn síðan. Nýjasta lagið kemur út í tilefni sjómannadagsins og það heitir Gellur eru bestar. „Gellur eru bestar er skemmtilegt lag. Það er kíkt í pottinn hjá guðunum og þar eru gellurnar,“ segir Sigtryggur léttur að lokum. Bogomil Font, hliðarsjálf Sigtryggs Baldurssonar, varð til í gríni þegar hljómsveitin Sykurmolarnir lagði upp laupana eftir að hafa sigrað heiminn. Grínið fékk óvænta vigt þegar fyrsta platan sló í gegn og Bogomil hefur glatt landsmenn síðan.
Go to News Site