Collector
Rússlands drap 17 hið minnsta í árásum í nótt og særði 100 | Collector
Rússlands drap 17 hið minnsta í árásum í nótt og særði 100
Fréttastofa RÚV

Rússlands drap 17 hið minnsta í árásum í nótt og særði 100

Rússlandsher gerði árásir víða um Úkraínu í nótt. Úkraínski fjölmiðillinn Kyiv Independent hefur eftir yfirvöldum að 17, hið minnsta, hafi verið drepnir. 100 eru særðir. Þá er sex manns saknað. Utanríkisráðherra Úkraínu, Andriy Sybiya, sagði í færslu á samfélagsmiðlum í morgun að árásirnar í nótt sýni að Vladimír Pútín Rússlandsforseti hafi ekki fleiri hernaðarlega valkosti í allsherjarinnrás sinni. Hann sagði Pútín vera stríðsglæpamann sem ætti engin spil eftir á hendi nema að valda skelfingu. „Rússar eru að tapa á vígvellinum og eldflaugar fá því ekki breytt,“ sagði hann. Rússlandsher beindi árásunum á borgir víðs vegar um Úkraínu. Hörðustu árásirnar gerði herinn á Kyiv og Dnipro. Úkraínuher segir að Rússar hafi varpað yfir 600 árásardrónum og tugum eldflauga á landið í nótt, þar á meðal flaugum sem erfitt er að stöðva með loftvarnakerfi. Volodymyr Zelensky varaði við því í gær að samkvæmt leyniþjónustuupplýsingum væru stórfelldar árásir yfirvofandi. Þá hótuðu stjórnvöld í Rússlandi því í síðustu viku að gera kerfisbundnar árásir. Það var eftir að þau sökuðu Úkraínuher um árás á heimavist á herteknu svæði í austurhluta Úkraínu. Stjórnvöld í Úkraínu segja árásina hafa beinst að hernaðarlegu skotmarki. Björgunarsveitir í Úkraínu hafa staðið í ströngu í morgun og leitað að fólki í rústum þeirra bygginga sem Rússlandsher varpaði sprengjum á í nótt.

Go to News Site