Collector
Fasteignamat lækkar að raunvirði milli ára | Collector
Fasteignamat lækkar að raunvirði milli ára
Fréttastofa RÚV

Fasteignamat lækkar að raunvirði milli ára

Heildarmat fasteigna fyrir árið 2027 nemur 17,8 þúsund milljörðum sem er 2,1% hækkun frá því í fyrra. Að raunvirði hefur fasteignamat hins vegar lækkað milli ára. Kólnun á fasteignamarkaði veldur því að fasteignaverð hefur ekki haldið í við verðbólgu og fasteignamat hækkar því minna nú en áður. Fasteignamat Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar fyrir árið 2027 birtist í dag. Þú getur skoðað fasteignamat á þinni eign hér. Matið tekur ekki til eigna í Grindavík þar sem fasteignamat verður kynnt síðar í júní, að því er segir í tilkynningu HMS. Stofnunin bíður þess að niðurstaða liggi fyrir á Alþingi um að halda fasteignamati óbreyttu þar milli ára til að birta nýtt mat á fasteignum í sveitarfélaginu. Fasteignamat fjölbýla á höfuðborgarsvæðinu stendur nánast í stað á milli ára. Þvert á tegundir íbúðarhúsnæðis hækkar fasteignamat þar um eitt prósent en það skrifast mest á verðhækkanir á sérbýlum. Sé litið til ólíkra landshluta er hækkun fasteignamats er mest á Vestfjörðum. Þar hefur fasteignamat hækkað um 4,6%. Í Bolungarvík nemur hækkunin 10,2% og er það mest allra sveitarfélaga. Atvinnueignir og sumarhús hækka meira en íbúðir Á landsvísu hækkar fasteignamat íbúða um 1,2% á milli ára en lækkar um 3,8% að raunvirði. Atvinnueignir og sumarhús hækka þó talsvert meira eða um 4,8 og 4,7% og eru nær því að halda í við verðbólgu en íbúðarhúsnæði. Iðnaðarhúsnæði hækkar mest af atvinnueignum, eða um 5,5%. Verslunarhúsnæði, skrifstofur og geymslur hækka hins vegar minna. Mikil verðhækkun hefur orðið á seldum sumarhúsum síðustu ár sem hefur hækkað fasteignamat þeirra. HMS gerir ráð fyrir því að verðhækkunin sé knúin áfram af eftirspurn. Hvað er fasteignamat? Fasteignamat er metið markaðsvirði fasteigna. HMS reiknar fasteignamat fyrir hverja fasteign á Íslandi árlega samkvæmt lögum um skráningu, merki og mat fasteigna. Fasteignamat hvers árs miðar við áætlað markaðsvirði í febrúar árið áður. Fasteignamat 2027 endurspeglar markaðsvirði fasteignar í febrúar 2026.

Go to News Site