Vísir
Reykjavíkurborg hefur lagt fram nýja og snyrtilega kröfu fyrir tónlistarskóla borgarinnar: Hver skóli þarf að lágmarki 150 nemendur til að fá þjónustusamning. Árið áður var lögð á 75 milljóna króna niðurskurðarkrafa á þessa sömu skóla, eða um sjö prósent. Sá niðurskurður lækkar auðvitað engin útgjöld hjá skólunum sjálfum — húsaleigan, rafmagn og laun kennara kosta ennþá nákvæmlega það sama. Þetta er einfaldlega kostnaður sem er færður beint úr bókhaldi borgarinnar og yfir á heimilisbókhald barnafjölskyldna í formi hærri skólagjalda eða skertrar þjónustu.
Go to News Site