Fréttastofa RÚV
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis telur skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um snjóflóðið í Súðavík 16. janúar 1995 hafa staðið fyrir sínu. Í umsögn nefndarinnar segir að skýrslan sé greinargóð og vönduð og hafi dregið vel fram atburði máls, og mikilvægur lærdómur fyrir stjórnvöld. Forseti Alþingis skipaði rannsóknarnefndina í kjölfar þingsályktunartillögu sem samþykkt var á Alþingi 30. apríl 2024. Nefndin tók til starfa 1. janúar 2025. Hlutverk hennar var að draga saman og birta upplýsingar um málsatvik í því augnamiði að varpa ljósi á ákvarðanir og verklag stjórnvalda bæði í aðdraganda snjóflóðsins og eftir að það féll. Nefndin skilaði skýrslu sinni 15. desember í fyrra. Meðal þess sem þar kom fram var að snjóathugunum hefði verið ábótavant og að lítill áhugi hafi verið fyrir snjóflóðavörnum í Súðavík í aðdraganda flóðsins. „Að lokinni yfirferð sinni er það mat nefndarinnar að skýrsla rannsóknarnefndar standi fyrir sínu. Hún er greinargóð og vönduð. Þingsályktunin lagði áherslu á að draga fram sannleikann um atburðina og eftirmála í tengslum við snjóflóðið í Súðavík 16. janúar 1995. Það er mat nefndarinnar að skýrslan dragi vel fram atburði málsins þrátt fyrir þann langa tíma sem liðinn er,“ segir í umsögn stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Rýni auki traust milli almennings og stjórnvalda Þar segir að þrátt fyrir að langt sé liðið frá snjóflóðinu og mikil þróun hafi orðið á vettvangi almannavarna megi draga þann lærdóm af skýrslunni að við framkvæmd almannavarna þurfi ábyrgð og verkaskipting að vera skýr, samskipti opin og góð og upplýsingaflæði tryggt. „Skýrslan á jafnframt að vera áminning um mikilvægi þess að almannavarnaatburðir séu rýndir og metnir þannig að leiða megi í ljós orsakir, draga lærdóm af fenginni reynslu og stuðla þannig að umbótum til frambúðar. Skapa þarf umhverfi trausts sem hefur að markmiði að læra af reynslunni og þar með styrkja almannavarnir en ekki að skipta sök eða ábyrgð. Með því megi jafnframt stuðla að auknu trausti milli almennings og stjórnvalda.“ Þakkar aðstandendum og eftirlifendum fyrir þrautseigju „Að lokum leggur nefndin áherslu á að með skýrslunni er tryggt að sagan sé varðveitt með heildstæðum hætti til frambúðar. Fyrir aðstandendur og eftirlifendur snjóflóðsins í Súðavík hefur leiðin verið löng og erfið. Að mati nefndarinnar ber að þakka þeim fyrir þá vegferð en það er einungis vegna ákalls þeirra og þrautseigju sem rannsóknarskýrslan leit dagsins ljós.“
Go to News Site