Fréttastofa RÚV
Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, auglýsti nýverið eftir tónleikastöðum á landinu því hann ætlar að ferðast um og spila fyrir fólk úti í náttúrunni í sumar. Hann vill helst koma fram á minni stöðum þar sem mikil nánd myndast. „Mér finnst 50-250 manns fullkomin stærð fyrir mig,“ segir Mugison í samtali við Kastljós þegar Guðrún Sóley Gestsdóttir ræddi við hann. „Mér finnst ég ná sambandi og það verður svona eins og þetta séu vinir mínir og ættingjar. Eins og ég sé í kaffiboði með nágrönnum og við getum sagt hvað sem er, og gert mikið af mistökum, sem ég lifi fyrir.“ Á tónleikum Mugison hefur hann lagt í vana sinn að segja gamansögur á milli laga og vera í samtali við áhorfendur. „Ég verð fimmtugur í september og á þessum fimmtíu árum hef ég verið á mörgum stöðum og kynnst mikið af fólki. Er temmilega laus á því. Stundum lendi ég í skrýtnum og skemmtilegum aðstæðum sem er gaman að segja frá.“ „Veipandi hlandhaus og sniffandi frík,“ er á meðal lýsinga Mugisonar á sjálfum sér í nýjasta textanum sem varð til þegar Bríet skoraði á hann að svara laginu Rólegur kúreki. Hann er á leið í tónleikaferð um landið og auglýsir eftir tónleikastöðum. Nýjasta lag Mugisons nefnist Kúrekinn (ég trúi á lygina) og það er komið í töluverða spilun. „Ég trúi á lygina, sem er eini sannleikurinn sem við eigum eftir í þessu lífi til að sameinast um,“ segir Mugison sposkur um titil lagsins. Í textanum lýsir hann „veipandi hlandhaus og sniffandi fríki.“ Þegar hann er spurður um hvern ræðir svarar hann: „Þetta er sjálfsagt, ég sjálfur. Maður á alls konar tímabil.“ Hugmyndin um að gera kúrekalag kviknaði í samtali við tónlistarkonuna Bríeti. „Þetta er að einhverju leyti innblásið af því þegar ég hitti hana,“ segir Mugison. Einn af stærri smellum hennar er lagið Rólegur Kúreki. „Veipandi hlandhaus og sniffandi frík,“ er á meðal lýsinga Mugisonar á sjálfum sér í nýjasta textanum sem varð til þegar Bríet skoraði á hann að svara laginu Rólegur kúreki. Hann er á leið í tónleikaferð um landið og auglýsir eftir tónleikastöðum. Í samtali kolleganna um lagið skoraði Bríet á Mugison að gera líka kúrekalag, sem væri einhvers konar svarlag. „Fyrir mörgum árum, þegar hún var með kúrekann sinn, sagði hún við mig í djóki: „Þú þarft að svara þessu.““ Sem fyrr segir hefur Mugison auglýst eftir ábendingum frá almenningi um hentuga tónleikastaði. „Ég er að leita að svona stöðum úti í náttúrunni, helst ekki of stórum. Það er gaman að vera í kjörrum, skrúðgörðum, syllum, hellum, fjörum, ég er að láta mig dreyma um að fólk komi með teppi. Það getur verið skemmtileg kakó- og kexsnilld, pikknikk-tónleikar hvort sem það verður rigning eða súld.“ „Veipandi hlandhaus og sniffandi frík,“ er á meðal lýsinga Mugisonar á sjálfum sér í nýjasta textanum sem varð til þegar Bríet skoraði á hann að svara laginu Rólegur kúreki. Hann er á leið í tónleikaferð um landið og auglýsir eftir tónleikastöðum.
Go to News Site