Collector
Heiða afhenti Hildi lyklana að skrifstofu borgarstjóra | Collector
Heiða afhenti Hildi lyklana að skrifstofu borgarstjóra
Fréttastofa RÚV

Heiða afhenti Hildi lyklana að skrifstofu borgarstjóra

Heiða Björg Hilmisdóttir, fráfarandi borgarstjóri, afhenti Hildi Björnsdóttur lyklana að skrifstofu borgarstjóra síðdegis. Við tilefnið afhenti Heiða Hildi einnig innrammaða ljósmynd af Vigdísi Finnbogadóttur hoppa parís. Hildur sagði að Vigdís hefði alltaf verið henni fyrirmynd. Fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar hófst í hádeginu og hægt er að fylgjast með honum í beinni útsendingu á vef Reykjavíkurborgar. Á dagskrá fundarins eru 32 mál. Þeirra á meðal eru endurskoðun samgöngusáttmálans, samstarf við atvinnulífið um leikskólarekstur og breytingar á fánareglum við stjórnsýsluhús borgarinnar.

Go to News Site