Collector
Fordæma harðlega innbrotið í Reykjabú | Collector
Fordæma harðlega innbrotið í Reykjabú
Fréttastofa RÚV

Fordæma harðlega innbrotið í Reykjabú

Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, segir samtökin fordæma harðlega það innbrot sem framið var í Reykjabúinu í gærnótt. Hún segir atvikið alvarlegt, sérstaklega í ljósi þess að þetta sé annað innbrot í landbúnaðarfyrirtæki á stuttum tíma. „Hugur okkar er hjá eigendum Reykjabús og starfsfólki fyrirtækisins. Fyrir þá sem verða fyrir slíku er þetta ekki aðeins eignatjón heldur innrás inn á vinnustað þeirra og lífsviðurværi. Það er óásættanlegt að fólk sem starfar við matvælaframleiðslu þurfi að búa við slíkt óöryggi,“ segir Margrét í tilkynningu samtakanna. Þann 12. maí var brotist inn í bú Stjörnugríss á Kjalarnesi og 10 grísir drápust í kjölfarið. Margrét segir að þegar tvö innbrot á skömmum tíma leiði bæði til tjóns, dauða eða aflífunar dýra þurfi að skoða þróun mála nánar. „Það þarf að senda skýr skilaboð um að innbrot, áreiti og ólögmætar aðgerðir eigi aldrei rétt á sér,“ segir Margrét. Hún gerir sömuleiðis athugasemd við það að aðgerðirnar séu framkvæmdar í yfirskyni dýravelferðar, innbrotin hafi bæði leitt til þess að dýr hafi drepist eða verið aflífuð. „Afleiðingarnar bitna á dýrunum sjálfum, starfsfólki fyrirtækjanna og fjölskyldum þeirra.“ Margrét segir að slík umræða eigi fullan rétt á sér en að grundvallaratriði sé að hún fari fram innan marka laga, innbrot í atvinnuhúsnæði séu ekki tjáningarform heldur lögbrot.

Go to News Site