Collector
Lögmannafélagið ítrekað óskað eftir gögnum frá lögmanni sem sakaður er um fjárdrátt | Collector
Lögmannafélagið ítrekað óskað eftir gögnum frá lögmanni sem sakaður er um fjárdrátt
Fréttastofa RÚV

Lögmannafélagið ítrekað óskað eftir gögnum frá lögmanni sem sakaður er um fjárdrátt

Guðrún Björg Birgisdóttir lögmaður hefur verið kærð fyrir fjárdrátt. Í kæru segir að hún hafi í störfum sínum sem skiptastjóri dánarbús konu dregið sér á annan tug milljóna króna. Lögmannafélag Íslands fór undir lok síðasta árs ítrekað fram á að Guðrún Björg skilaði inn fjárvörsluyfirlýsingu. Hún varð þó aldrei við beiðninni. Heimildin greindi fyrst frá málinu. Lögmannsstofa Guðrúnar Bjargar, Logia ehf., var úrskurðuð gjaldþrota 7. janúar á þessu ári. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður höfðar málið fyrir hönd tveggja erfingja konunnar. Samkvæmt kæru, sem Vilhjálmur undirritar, er Guðrún Björg talin hafa dregið sér 12.571.625 krónur úr dánarbúinu. Féð var geymt á fjárvörslureikningi Logia ehf. Brotaþolar fara fram á að Vilhjálmur verði skipaður réttargæslumaður vegna rannsóknar lögreglu á málinu. Ingimar Ingason, framkvæmdastjóri Lögmannafélags Íslands, staðfestir að lögmannsréttindi Guðrúnar Bjargar hafi verið felld niður í ársbyrjun að beiðni félagsins. Félagið fór fram á það sökum þess að Guðrún Björg hafði ekki skilað félaginu fjárvörsluyfirlýsingu, sem hafði átt að berast eigi síðar en 1. október á síðasta ári. „Umræddur aðili skilaði ekki inn þessari skýrslu þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir,“ segir Ingimar. „Þess vegna var félaginu í raun og veru skylt að fara fram á niðurfellingu réttinda.“ Hann segir félagið þó ekki hafa aðild að málum sem þessum. Einu tól Lögmannafélags Íslands í slíkum málum séu í raun þau að leggja til niðurfellingu lögmannsréttinda. Um fjárvörslureikninga og fjárvörsluyfirlýsingu Á vef Lögmannafélags Íslands er að finna upplýsingar um fjárvörslureikninga. Þar segir að lögmanni sem ekki hefur fengið undanþágu frá skyldum 1. mgr. 12. sé skylt að halda þeim fjármunum sem hann tekur við í þágu annarra aðgreindum frá eigin fé. Þá sé honum skylt að hafa sérstakan fjárvörslureikning í viðurkenndri bankastofnun. Jafnframt er honum skylt að veita stjórn félagsins upplýsingar um vörslufé. „Lögmaður, sem varðveitir fé umbjóðanda síns, skal færa sérstakan viðskiptareikning í bókhaldi sínu, sem sýnir inneign umbjóðandans á hverjum tíma. Á reikninginn skal færa allt fé, sem lögmaðurinn tekur við til varðveislu, þ.m.t. fyrirframgreiðslu kostnaðar og tryggingu fyrir greiðslu kostnaðar og þóknunar lögmannsins. Lögmanni er ekki skylt að færa á reikninginn fé, sem hann tekur við og skilar samdægurs,“ segir á vef félagsins. Þegar sérstakar aðstæður mæla með því er heimilt að færa fjárvörslureikninga vegna einstakra umbjóðenda. „Lögmaður skal fyrir 1. október ár hvert senda Lögmannafélagi Íslands, á þar til gerðu eyðublaði, yfirlýsingu sem staðfest er af löggiltum endurskoðanda um að staða vörslufjárreiknings hinn 31. desember fyrra árs sé ekki lægri en staða vörslufjár samkvæmt bókhaldi lögmannsins. Samtímis skal lögmaður senda félaginu upplýsingar um verðbréf sem voru í hans vörslu 31. desember fyrra árs sem staðfestar eru af löggiltum endurskoðanda.“ Ekki náðist í Guðrúnu Björgu við vinnslu fréttarinnar.

Go to News Site