Fréttastofa RÚV
Leiðtogar þeirra fjögurra flokka sem mynda nýja ríkisstjórn Danmerkur kynntu stefnumálin í dag. Þegar Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmanna, var spurð hvort hún ætlaði að vera forsætisráðherra áfram kvaðst hún ekki hafa aðrar áætlanir. Hún hefur gegnt embættinu síðustu tvö kjörtímabil, síðan 2019. Ráðherrahópurinn verður kynntur á morgun. Frederiksen sagði í dag að þetta yrði ríkisstjórn sem yrði fyrst og fremst nálægt öllu daglegu lífi Dana. Leiðtogi Einingarlistans, sem ver stjórnina falli, tilkynnti í morgun að virðisaukaskattur á mat verði lækkaður um helming og felldur niður af ávöxtum og grænmeti. Martin Lidegaard, Pia Olsen Dyhr, Mette Frederiksen og Lars Loekke Rasmussen á blaðamannafundi í Marienborg, opinberum embættisbústað forsætisráðherrans.AP/Ritzau Scanpix Foto / Liselotte Sabroe
Go to News Site