Collector
Reiði í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu við hnífaárás | Collector
Reiði í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu við hnífaárás
Fréttastofa RÚV

Reiði í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu við hnífaárás

Reiði hefur blossað upp í Bretlandi eftir að myndefni úr búkmyndavél lögreglu sem kom á vettvang hnífaárásar í Southampton í desember var gert opinbert. Árásarmaðurinn var í gær dæmdur í 21 árs fangelsi og myndefnið var hluti af rannsókn málsins og málaferlunum. Sjá má hinn 18 ára Henry Nowak liggja í jörðinni í myndbandinu. Hann sagði lögreglunni nokkrum sinnum að hann hefði verið stunginn og gæti ekki andað. Hann hafði verið úti að skemmta sér með fótboltafélögum sínum þegar hann var stunginn fjórum sinnum. Lögreglumaður heyrist spyrja Nowak hvar hann hafi verið stunginn og segjast efast um að svo hafi verið. Stuttu síðar missti ungi maðurinn meðvitund og lést. Sakaði fórnarlambið um kynþáttahatur Árásarmaðurinn er 23 ára og stakk Nowak með hnífi með 21 sentimetra löngu blaði. Árásarmaðurinn var með túrban, eða vefjarhött, um höfuðið og sagði við lögreglu að Nowak hefði sýnt sér kynþáttahatur með því að rífa af sér höfuðfatið. Það reyndist vera lygi. Hann var dæmdur til 21 árs fangelsisvistar í dag. Eftir dóminn í dag sagði faðir Nowaks það hafa verið sláandi að sjá framkomu lögreglu gagnvart syni hans. BBC hefur eftir föðurnum að sonur hans hafi sagt lögreglunni níu sinnum að hann gæti ekki andað. Hann hafi sagt þeim að hann hefði verið stunginn fjórum sinnum. Þrátt fyrir það hafi hann verið dreginn eftir götunni með hendur fyrir aftan bak og handjárnaður. Starmer vill rannsókn á störfum lögreglu Forsætisráðherra Bretlands, Keir Starmer, fordæmdi málið í færslu á X og sagði rétt að sjálfstæð rannsóknarnefnd um störf lögreglu rannsakaði viðbrögð lögreglunnar við morðinu. Starmer sagði við fjölmiðla í dag að sem faðir 17 ára barns hefði honum liðið skelfilega að horfa á myndbandið. Hinn látni hefði verið góðhjartaður, hugulsamur og elskaður af mörgum. Dauði hans væri ástvinum og öllum sem þekktu hann mikill harmur. Nigel Farage, leiðtogi Umbótaflokksins, hefur kallað eftir breytingum á fjölbreytileikastefnu lögreglunnar vegna málsins. Stjórnmálamenn hafa einnig varað við því að málið valdi sundrungu í landinu. Innanríkisráðherrann, Shabana Mahmood, greindi frá því á breska þinginu í morgun að lögreglumaður, sem tengist málinu ekki á neinn hátt, hefði verið áreittur vegna misskilnings og neyðst til að flytja til að tryggja öryggi sitt og fjölskyldunnar. Lögregla sagði að innan þriggja mínútna frá því að hún kom að Nowak hefðu lífgunartilraunir verið hafnar. Varalögreglustjóri Southampton, Robert France, hefur sagt miður hvernig fór og að ekki hafi tekist að bjarga Nowak. Þá sagði meinafræðingur við réttarhöldin að lögregla hefði ekki getað gert neitt til að bjarga honum. Blæðingarnar hafi verið miklar og innvortis.

Go to News Site