Collector
Stöðugleiki helsti kostur evru – vinnumarkaðsmódelið áskorun | Collector
Stöðugleiki helsti kostur evru – vinnumarkaðsmódelið áskorun
Fréttastofa RÚV

Stöðugleiki helsti kostur evru – vinnumarkaðsmódelið áskorun

Aðalhöfundur skýrslu um kosti Íslands í gjaldmiðlamálum segir að stöðugleiki væri helsti ávinningurinn af upptöku evru. Mikill óstöðugleiki sé í íslensku hagkerfi sem endurspeglist í gengi krónu, verðlagi og vaxtaákvörðunum Seðlabankans. Allt sé það til þess fallið að skapa óvissu. „Fólki líkar ekki við óvissu. Það vill vita hve langt launin duga,“ segir Catherine L. Mann, fyrrverandi aðalhagfræðingur OECD. Hún var til viðtals í Kastljósi í kvöld. Mann lagði mikla áherslu á að það væri ekki verk skýrsluhöfunda að mæla með eða gegn aðild að Evrópusambandinu eða upptöku evru. Slíkt gætu erlendir hagfræðingar ekki gert. „Við erum öll útlendingar. Starf okkar fólst ekki í að leggja fram ráðleggingar, heldur aðeins að koma með hlutlaust mat á kostum og ókostum sem tengjast upptöku evrunnar,“ segir hún. Óstöðugleikinn endurspeglast að hennar sögn ekki aðeins í verðlagi heldur fylgir honum einnig áhættuálag í viðskiptum sem skýrir hátt vaxtastig á Íslandi. Bil milli hagvaxtar og launaþróunar leiðrétt með gengi Ýmsar áskoranir fylgja þó upptöku evru, að sögn Mann. Hún nefnir einkum vinnumarkaðsmódelið. Nærri 90% fólks á íslenskum vinnumarkaði eru aðilar að verkalýðsfélögum og eru áhrif þeirra hvergi jafnmikil og á Íslandi. „Eitt af því eftirtektarverðasta við Ísland er hve jöfn dreifing tekna er. Þetta er afar mikilvægur þáttur íslenska hagkerfisins,“ segir Mann. Bendir hún á að kjarasamningsferlið eigi þátt í því, þ.e. hve mikil áhrif samningaviðræður milli aðila vinnumarkaðarins hafa á laun í landinu. „Ein afleiðing þess er að það getur orðið bil milli hagvaxtar og þess hvernig laun eru ákveðin,“ segir Mann. Með öðrum orðum, laun geti hækkað umfram framleiðniaukningu. „Þetta bil fer stöku sinnum úr jafnvægi, þá tapast alþjóðleg samkeppni og yfirleitt þarf gengislækkun til að svara þessu bili,“ segir Mann. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hefur sjálfur bent á vinnumarkaðsmódelið í tengslum við upptöku evru. Í viðtali við Innherja í síðasta mánuði sagði Ásgeir að það væri forsenda fyrir upptöku evru að hinn „séríslenski verðbólguvandi“ væri leystur, nefnilega miklar launahækkanir. Ætlar ekki að ráða Íslendingum heilt Aðspurð segist Mann ekki ætla að ráðleggja Íslendingum neitt þegar kemur að ESB-aðild. „Ólíkt fólk metur þessi mál á ólíkan hátt,“ segir hún. Fyrir suma séu efnahagsmálin efst á blaði, en inn í matið komi önnur mál sem ekki er fjallað um í skýrslunni. „Við erum útlendingar. Við getum ekki fjallað um pólitísk eða geópólitísk mál eða þjóðaröryggismál. Íslenska þjóðin tekur afstöðu til þeirra, ekki erlendir hagfræðingar.“

Go to News Site