Fréttastofa RÚV
Veszprem lagði Pick Szeged að velli í síðari úrslitaleik liðanna um ungverska meistaratitilinn í handbolta í kvöld með 36 mörkum gegn 34. Leikið var í Szeged í kvöld en Veszprem vann fyrri leikinn á heimavelli um liðna helgi, 38-36. Bjarki Már Elísson skoraði 3 mörk fyrir Veszprem í kvöld og Janus Daði Smárason 2 fyrir Szeged. Þetta er fjórða árið í röð sem Veszprem hampar ungverska titlinum og hefur Bjarki Már unnið alla fjóra með liðinu. Hann kveður nú ungverska stórliðið og er óvist hvar hann leikur á næsta vetri. Janus Daði er sömuleiðis á leið frá Ungverjalandi en hann hefur samið við Barcelona. Bjarki Már Elísson er ungverskur meistari í fjórða sinn.Imago
Go to News Site