Collector
Bandaríkjamenn gerðu árás á olíuskip í Persaflóa | Collector
Bandaríkjamenn gerðu árás á olíuskip í Persaflóa
Fréttastofa RÚV

Bandaríkjamenn gerðu árás á olíuskip í Persaflóa

Bandaríski herinn gerði í dag árás á olíuskip í Persaflóa til að koma í veg fyrir að það kæmist til íranskrar hafnar. Olíuskipið, sem er skráð í Botsvana, stefndi á írönsku eyjuna Kharg, en þar er að finna stórar olíuhreinsunarstöðvar. Þetta kemur fram í færslu bandaríska hersins á X , þar sem einnig var deilt myndbandi af árásinni. Þar sést hvernig flugskeyti sprengir gat á hlið olíuskipsins. Áhöfnin virti að vettugi ítrekaðar viðvaranir og fylgdi ekki fyrirmælum hersins. Óvíst er hvort slys urðu á fólki í árásinni. Hafnbann Bandaríkjanna á íranskar hafnir tók gildi 13. apríl. Það felur í sér að Bandaríkin leyfa skipum ekki að sigla til eða frá írönskum höfnum í Ómanflóa og Persaflóa.

Go to News Site