Collector
Fræsing í Hafnarfirði annað kvöld | Collector
Fræsing í Hafnarfirði annað kvöld
Fréttastofa RÚV

Fræsing í Hafnarfirði annað kvöld

Stefnt verður að því að fræsa kafla ásamt hringtorgi í Fjarðarhrauni í Hafnarfirði kvöldið 3. júní og aðfaranótt 4. júní. Kaflinn sem um ræðir er 540 metra langur ásamt FH hringtorgi. Fjarðarhrauni verður lokað á milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar á meðan framkvæmdum stendur. Hjáleið verður um Reykjavíkurveg og Fjarðargötu. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 miðvikudaginn 3. júní og fram til 03:00 á fimmtudagsmorgun. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Go to News Site