Collector
Bandaríkjaforseti lýsir yfir stuðningi við De la Esprilla | Collector
Bandaríkjaforseti lýsir yfir stuðningi við De la Esprilla
Fréttastofa RÚV

Bandaríkjaforseti lýsir yfir stuðningi við De la Esprilla

De la Espriella ávarpar stuðningsfólk sitt eftir fyrri umferð kosninga í Kólumbíu. Hann er á bak við skothelt gler en kosningabaráttan hefur verið blóðug.AP / Fernando Vergara Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti í kvöld yfir stuðningi við hægrimanninn Abelardo de la Espriella í baráttunni um forsetaembættið í Kólumbíu. Kosið verður á milli hans og vinstrimannsins Ivan Cepeda í seinni umferð forsetakosninga 21. júní . „Úrslit kosninganna eru mjög mikilvæg fyrir framtíð Kólumbíu og samband þess við Bandaríkin. Vegna gífurlegra afreka hans í lífinu og pólitísks stuðnings í minn garð, þá er það mér heiður að lýsa yfir algjörum stuðningi mínum við Abelardo,“ skrifar Trump í færslu á Truth Social. De la Esprilla brást við með því að segja að samband ríkjanna yrði sterkara en nokkru sinni fyrr, nái hann kjöri.

Go to News Site