Collector
Mexíkóskir kennarar veltu styttum um koll – hóta að setja HM í uppnám | Collector
Mexíkóskir kennarar veltu styttum um koll – hóta að setja HM í uppnám
Fréttastofa RÚV

Mexíkóskir kennarar veltu styttum um koll – hóta að setja HM í uppnám

Kennarar í Mexíkóborg veltu styttum af fótboltamönnum um koll á einni af aðalgötum borgarinnar í gær. Þeir hóta frekari mótmælum ef stjórnvöld samþykkja ekki launakröfur þeirra. Mexíkó er ein þriggja gestgjafaþjóða heimsmeistaramótsins í fótbolta, sem er haldið í sumar, ásamt Bandaríkjunum og Kanada. Á Paseo de la Reforma í höfuðborginni Mexíkóborg má finna fimm metra háar styttur af fótboltamönnum víða að úr heiminum. Mótmælendur veltu styttum af fótboltamönnum frá Belgíu, Frakklandi og Spáni um koll, rifu af þeim keppnisbúningana og kveiktu í þeim. Mótmælendurnir létu styttu sem sýnir mexíkóskan fótboltakappa aftur á móti í friði. Krefjast tvöföldunar launa Mótmælendurnir koma úr röðum óánægðra félagsmanna í mexíkóska kennarasambandinu. Þeir hafna 9% launahækkun sem stjórn kennarasambandsins og stjórnvöld hafa náð samkomulagi um. Þess í stað krefjast þeir 100% launahækkunar , það er tvöföldunar. Þeir hafa einnig sett sig upp á móti breytingum sem stendur til að gera á eftirlaunum kennara. Í umfjöllun The Guardian segir að fyrirtækjaeigendur séu óttaslegnir um að kennaramótmælin eigi eftir að gera væntanlegan uppgang í tengslum við HM að engu. Þau geti haft neikvæð áhrif á þúsundir fyrirtækja. Sergio Cruz, einn af kennurunum, segir við Guardian að mótmælin haldi áfram. Stjórnvöld hafi lítið gert annað en að funda og ekki náð neinum árangri. „Við krefjumst réttlætis,“ segir Cruz.

Go to News Site