Collector
Hyggst verja fúlgum til að milda höggið af hækkandi olíuverði | Collector
Hyggst verja fúlgum til að milda höggið af hækkandi olíuverði
Fréttastofa RÚV

Hyggst verja fúlgum til að milda höggið af hækkandi olíuverði

Ríkisstjórn Japans samþykkti í dag að verja rúmlega 2.400 milljörðum króna í aðgerðir til að styðja við heimili landsins. Ákvörðunin var tekin með það fyrir augum að milda höggið af hækkandi verðlagi sem rakið er að mestu til stríðsins í Mið-Austurlöndum. Til stendur að verja fénu í að niðurgreiða eldsneyti og orkureikninga heimila, að því er segir í frétt Reuters . Japanska þingið á þó enn eftir að samþykkja tillöguna. Búist er við því að það geti gerst á föstudag. AFP-fréttaveitan hefur eftir Minoru Kihara, talsmanni ríkisstjórnarinnar, að ríkisstjórnin ætli hafi eyrnamerkt rúmlega þrjár trilljónir japanskra jena til stuðningsaðgerða, það er líkt og áður segir um 2.400 milljarðar króna. Til að setja þá tölu í eitthvað samhengi þá er það nærri helmingur vergrar landsframleiðslu Íslands í fyrra. „Á óvissutímum vegna ástandsins í Miðausturlöndum, þá höfum við sett saman þessi fjáraukalög með það fyrir augum að lágmarka áhættu,“ sagði Kihara á blaðamannafundi. Í maí sagði Sanae Takaichi, forsætisráðherra landsins, að fjáraukalögin yrðu nýtt til þess að lækka verð eldsneytis, rafmagns og gass. Hún sagði stjórnvöld gera ráð fyrir að geta tryggt öruggar birgðir olíu fram á næsta vor.

Go to News Site