Fréttastofa RÚV
Frá og með 15. apríl eiga ökumenn að vera búnir að leggja nagladekkjunum.RÚV / Ragnar Visage Nokkuð var um að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kærði ökumenn fyrir umferðarlagabrot í gærkvöldi og í nótt. Ökumenn voru ýmist teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna eða áfengis og í það minnsta fjórir ökumenn voru gripnir í akstri án ökuréttinda. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir verkefni hennar frá því klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Einn ökumaður var kærður fyrir að aka á nagladekkjum. Nagladekk eru lögleg frá 1. nóvember til 14. apríl. Það er því rúmlega einn og hálfur mánuður síðan þessi bílstjóri hefði átt að vera búinn að skipta um dekk.
Go to News Site