Fréttastofa RÚV
Patrick vann könnun sérfræðingahópsins með yfirburðum. Hann hefur skorað 134 mörk fyrir Val í efstu deild og er markahæstur í sögu efstu deildar. „Mjög mikill heiður og stolt. Þetta skiptir mig miklu máli og er mér heiður,“ segir Patrick í samtali við RÚV. Patrick kom fyrst til Íslands að spila með Val sumarið 2013 og hefur verið hér meira og minna síðan. Hann lítur þó ekki á sig sem annað en Dana. „Ísland er mitt annað heimili en mér líður meira sem Dana en Íslendingi, orðum það þannig.“ Hann viðurkennir að hafa ekki átt von á að vera svona lengi hér á landi. „Ég kom á láni og átti að spila nokkra leiki en svo kom ég aftur og held áfram að koma aftur.“ Viðtal Almarrs Ormarssonar við Patrick má sjá í spilaranum að ofan.
Go to News Site