Fréttastofa RÚV
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur samþykkt tímabundið regluverk um ríkisaðstoð til atvinnugreina sem verða fyrir áhrifum af stríðinu í Mið-Austurlöndum. „Regluverkið heimilar markvissa og tímabundna aðstoð til atvinnugreina sem verða fyrir sérstaklega miklum áhrifum af stríðinu, þar á meðal landbúnaðar, sjávarútvegs, samgangna og orkufreks iðnaðar. Markmiðið er að takmarka efnahagslegar afleiðingar og styðja við mikilvæga hluta efnahagslífsins sem verða fyrir barðinu á háum orkukostnaði,“ segir í tilkynningu frá ESA. Reglurnar samsvara reglum sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti fyrir aðildarríki þess í lok apríl. Hvað er ESA? ESA er stofnun á vegum EFTA-samtakanna og hefur það hlutverk að fylgjast með framkvæmd samnings um evrópska efnahagsssvæðið (EES) og tryggja fullnustu EFTA-ríkjanna á honum. Aðild að stofnuninni eiga þau þrjú EFTA-ríki sem sem jafnframt eru aðila að EES, Ísland, Liechtenstein og Noregur. ESA hefur eftirlit með ríkisaðstoð frá EES-EFTA-ríkjunum til að tryggja sanngjarna samkeppni og vel starfandi innri markað á EES-svæðinu. Ríkjunum ber að tilkynna ESA um fyrirhugaðar stuðningsaðgerðir. EES-samningurinn bannar að meginreglu ríkisaðstoð til að koma í veg fyrir neikvæð áhrif á viðskipti, en heimilt er að gera undantekningar vegna markmiða á borð við umhverfisvernd, byggðaaðstoð og rannsóknir, nýsköpun og þróun.
Go to News Site