Collector
Meira en tuttugu leyfislausir leiðsögumenn stöðvaðir á árinu | Collector
Meira en tuttugu leyfislausir leiðsögumenn stöðvaðir á árinu
Fréttastofa RÚV

Meira en tuttugu leyfislausir leiðsögumenn stöðvaðir á árinu

Erlendum leiðsögumönnum, sem fara um landið með hópa, án tilskilinna leyfa virðist fara fjölgandi. Í ár Það sem af er árinu hefur lögreglan á Suðurlandi stöðvað tuttugu slíka hópa. Hún segist ná betur utan um ólöglega ferðaþjónustu en áður. „Aukningin er alveg sýnileg, eins og kemur fram í tölum. Þessum brotum hefur verið að fjölga,“ segir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri á Suðurlandi. Í því umdæmi hefur lögreglan eftirlit með nokkrum af vinsælustu ferðamannastöðum landsins. Það lendir því að mestu leyti á þeirra borði að stöðva leiðsögumenn með hópa og kanna hvort starfsemin sé lögleg. Sífellt oftar er hún það ekki. Árið 2018 voru skráð 26 slík mál í umdæminu, árið eftir meira en tvöfalt fleiri og í fyrra voru skráð sjötíu og sex rekstrarleyfisbrot. Það eru nær eingöngu ferðamannahópar. Einum snúið við á leið úr Norrænu Og málin eru víðar um landið, Lögreglan á Austurlandi stöðvar til dæmis stundum fólk sem er að koma úr Norrænu með hópferðabíla. Einum hefur verið vísað á brott við landamærin á Seyðisfirði á árinu þar sem ljóst þótti að sá ætlaði með hóp um landið á rútu án tilskilinna leyfa. Lögreglan segir algengt að leiðsögumenn segist vera á ferð með stórfjölskylduna, þegar þar er leiðsögumaður á launum og ferðaskrifstofa að fá greitt fyrir ferðina. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir vandamálið viðvarandi. Hættan sem því fylgir er til dæmis að fólk starfi hér á landi við bagaleg kjör, ekið sé um á ótryggðum hópferðabílum og svo er talsvert um að fólk fái rangar upplýsingar um land og þjóð. Þetta hafi verið erfitt viðureignar og margar stofnanir með ólík hlutverk og valdsvið komi að, til dæmis lögreglan, Skatturinn og Vinnueftirlitið. Þar hafi verið tekin jákvæð skref, samvinna aukin og málin séu nú tekin fastari tökum. „Að það spyrjist út að það sé verið að sinna aktívu eftirliti á landinu, það er kannski það sem skiptir mestu máli núna og meiri og betri samvinna þessara stofnana leiðir þá til þess vonandi að það dregur úr þessu.“

Go to News Site