Collector
Evrópusambandið rýmkar reglur um hallarekstur aðildarríkjanna vegna orkukrísunnar | Collector
Evrópusambandið rýmkar reglur um hallarekstur aðildarríkjanna vegna orkukrísunnar
Fréttastofa RÚV

Evrópusambandið rýmkar reglur um hallarekstur aðildarríkjanna vegna orkukrísunnar

Aðildarríki Evrópusambandsins fá aukið svigrúm frá reglum ESB um opinber fjármál, til að bregðast við auknum útgjöldum vegna orkukreppunar í kjölfar átakanna í Mið-Austurlöndum. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti þessar ráðstafanir í dag, þegar árlegt yfirlit um fjármál aðildarríkjanna var kynnt . Samkvæmt reglum Evrópusambandsins má hallinn á ríkissjóðum aðildarríkjanna ekki vera meira en þrjú prósent af þjóðarframleiðslu. Áföll á undanförnum árum, heimsfaraldurinn, allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu vorið 2022 og nú síðast átökin í Mið-Austurlöndum, hafa hins vegar leitt til aukinna útgjalda, ekki aðeins vegna hærra orkuverðs, heldur einnig vegna kröfunnar um auknar fjárfestingar í varnar- og öryggismálum. Allt þetta leiddi til þess að reglurnar um hallarekstur voru teknar úr sambandi, fyrst vegna heimsfaraldursins og aftur vegna snarhækkandi orkuverðs vorið 2022. Ellefu ríki innan ESB eru nú með hallarekstur sem er hærri en 3 prósent af þjóðarframleiðslu, þar á meðal Ítalía og Frakkland; mestur er hallareksturinn í Rúmeníu, 7,9 prósent. Búlgaría bættist í þennan hóp í dag, rétt hálfu ári eftir að evran var tekin upp þar í landi. Innan Evrópusambandsins var hallarekstur ríkissjóða að meðaltali 3,1 prósent í fyrra og 2,9 prósent á evrusvæðinu. Til samanburðar segir Stjórnarráðið að hallarekstur ríkissjóðs Íslands verði á þessu ári um 0,3 prósent.

Go to News Site