Collector
Söfnuðu 600.000 krónum á þremur dögum | Collector
Söfnuðu 600.000 krónum á þremur dögum
Fréttastofa RÚV

Söfnuðu 600.000 krónum á þremur dögum

Katrín Rós Harðardóttir og Katrín Mjöll Björgvinsdóttir söfnuðu rúmum 600.000 krónum á aðeins þremur dögum til styrktar Krafti, stuðningsfélagi fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Katrín Rós og Katrín Mjöll eru báðar í tíunda bekk í Kársnesskóla og var söfnunin liður í lokaverkefni þeirra. Stelpurnar eiga báðar nána aðstandendur sem hafa greinst með krabbamein og því varð Kraftur fyrir valinu. „Við máttum gera hvað sem er og okkur langaði að gera eitthvað sem er okkur hjartans mál. Þess vegna ákváðum við að styrkja Kraft.“ Vöktu athygli á söfnuninni á Instagram Á þremur dögum náðu stelpurnar að selja rúmlega 170 armbönd. Þær fóru heldur óhefðbundna leið í sölumennskunni en þær stofnuðu Instagram-reikning til þess að vekja athygli á söfnuninni. Stelpurnar fóru víða og seldu armbönd, þær gengu í hús, seldu á kennarastofunni og stóðu við innganga matvöruverslana og seldu. Tvær stelpur í tíunda bekk í Kársnesskóla stóðu fyrir sölu á armböndum til styrktar stuðningsfélaginu Krafti. Á þremur dögum tókst þeim að safna rúmum 600.000 krónum, félagið segir styrkinn ómetanlegan. Eva Sigrún Guðjónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Krafts, segir framlag stelpnanna ómetanlegt. „Það hefur mikla þýðingu fyrir okkur að fá svona góðan styrk inn í starfið, en við reiðum okkur alfarið á framlög einstaklinga og fyrirtækja í okkar fjáröflun þannig að þessar 600.000 krónur sem stelpurnar söfnuðu koma sér einstaklega vel.“ Armböndin sem stelpurnar seldu eru handgerð af sjálfboðaliðum. Kraftur stendur fyrir sölu á armböndunum ár hvert, Eva segir armbandsgerðina eitt stórt samfélagsverkefni. „Það er samfélagið sem að tekur sig saman og perlar armböndin fyrir okkur, við erum með viðburði um allt land og virkjum þannig samfélagið.“

Go to News Site