Collector
Jelena Tinna inn í landsliðið fyrir Hafrúnu Rakel | Collector
Jelena Tinna inn í landsliðið fyrir Hafrúnu Rakel
Fréttastofa RÚV

Jelena Tinna inn í landsliðið fyrir Hafrúnu Rakel

Hafrún Rakel Halldórsdóttir þarf að draga sig úr landsliðshópi kvenna í fótbolta sem mætir Úkraínu á föstudag vegna meiðsla. Inn í hópinn í hennar stað kemur Jelena Tinna Kujundzic, leikmaður Þróttar. Jelena Tinna Kujundzic í leik með Þrótti í sumarRÚV / Mummi Lú Jelena Tinna er 23 ára miðvörður og gæti spilað sinn fyrsta A-landsleik gegn Úkraínu eða Spáni á þriðjudag. Hún á þó 10 leiki fyrir yngri landsliðin. Úkraína - Ísland verður í beinni útsendingu á RÚV á föstudag. Leikurinn hefst 16:00, upphitun 15:35.

Go to News Site