Fréttastofa RÚV
Opna franska risamótið í tennis klárast næstu helgi. Sú ótrúlega staða er komin upp að enginn af þeim leikmönnum sem enn eru eftir í einliðaleik karla og kvenna hefur áður unnið risamót. Einokun hingað til hjá körlunum Hjá körlunum hafa Ítalinn Jannik Sinner og Carlos Alcaraz einokað risatitlana undanfarin ár. Þar áður skiptu Rafael Nadal, Roger Federer og Novak Djokovic þeim iðulega á milli sín. Nadal og Federer lögðu spaðana á hilluna fyrir þó nokkru og Alcaraz er meiddur og missti af opna franska í ár. Auk Sinner og Djokovic höfðu, af þeim 128 spilurum sem hófu mótið, Svisslendingurinn Stan Wawrinka, Króatinn Marin Čilić og Rússinn Daniil Medvedev einir unnið risamót. Þeir þrír duttu allir út í fyrstu umferð, Sinner í þeirri annarri og Djokovic í þriðju. Af þeim fjórum sem eru komnir í undanúrslit er Þjóðverjinn Alexander Zverev sá eini sem leikið hefur til úrslita á risamóti. Það hefur hann gert þrisvar en aldrei unnið. Hann mætir Tékkanum Jakub Mensík í undanúrslitum sem aldrei hefur komist svona langt áður. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Ítalarnir Flavio Cobolli og Matteo Arnaldi. Hvorugur hafði komist í 8-liða úrslit á risamóti áður, hvað þá undanúrslit. Sabalenka íhugar að hætta Hjá konunum hefur engin verið með sömu yfirburði og hjá körlunum og risatitlarnir undanfarin ár dreyft sér betur. Það er þó óhætt að segja að óvænt úrslit hafi orðið í hverri umferð; Bandaríkjakonan Jessica Pegula datt út í fyrstu umferð, Elena Rybakina frá Kasakstan í næstu, Coco Gauff frá Bandaríkjunum í þriðju og Belarúsinn Aryna Sabalenka var því langsigurstranglegust kvenna þegar komið var í 8-manna úrslitin, enda efst á heimslistanum og sú eina af eftirstandandi keppendum sem komist hafði í úrslit á risamóti. Hún vann opna ástralska 2023 og 2024 og Wimbledon 2024 og 2025. Hún virtist líka eiga greiða leið í undanúrslitin því hún vann fyrsta settið í dag gegn hinni rússnesku Diönu Shnaider, 6-3 og leiddi 5-3 í öðru setti. Þá virtist hún hins vegar lenda á vegg því Shnaider vann 10 lotur í röð, vann þannig annað settið 7-5 og þriðja 6-0 og þar með leikinn 2-1. „Mig langar bara að hætta í tennis akkúrat núna, en sjáum til eftir nokkra daga. Vonandi kemst ég aftur á rétta braut, hugarfarslega séð.“ – Aryna Sabalenka eftir tapið í dag. Shnaider hefur aldrei komist í undanúrslit áður, ekki frekar en andstæðingur hennar þar, Maja Chwalinska frá Póllandi sem er í 113. sæti heimslistans en hún vann hina rússnesku Önnu Kalinskaya í dag, 7-6 og 6-4. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Marta Kostyuk frá Úkraínu og Mirra Andreeva frá Rússlandi. Andreeva er í annað skiptið á ferlinum í undanúrslitum, Kostyuk í sitt fyrsta. Undanúrslit kvenna eru á morgun, úrslitin á laugardag. Karlarnir leika til undanúrslita á föstudag og úrslita á sunnudag.
Go to News Site