Collector
Mikilvægt að hleypa ungu stjórnmálafólki að borðinu | Collector
Mikilvægt að hleypa ungu stjórnmálafólki að borðinu
Fréttastofa RÚV

Mikilvægt að hleypa ungu stjórnmálafólki að borðinu

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tók sæti á Alþingi í morgun eftir tæplega árslangt námsleyfi í Bandaríkjunum. Stoppið á Alþingi var hins vegar stutt en hún steig upp í pontu og sagði af sér þingmennsku. Áslaug segist hafa talað fyrir því á yngri árum að stjórnmál ættu ekki endilega að vera ævistarf fólks, mikilvægt sé að hleypa ungum að. „Ég horfi yfir þessi tíu ár ótrúlega sátt og glöð yfir því að hafa tekið þessi skref og sýnt fólki að ungt fólk geti tekið að sér ábyrgðarstörf í samfélaginu og að því fylgi stundum bara ferskir og nýir vindar.“ Næstu skref Áslaugar liggja ekki enn fyrir en hún kveðst opin fyrir öllum þeim atvinnum þar sem hún geti látið til sín taka, breytt heimsmynd og tækniframfarir eru henni ofarlega í huga. „Ég held að það séu að verða miklar breytingar hvert sem við lítum, ekki bara á heimsmyndinni heldur líka vegna tækniframfara og breytinga á þeim sviðum og mig langar að taka þátt í þeim framförum hvar sem ég geri það.“ Áslaug laut í lægra haldi fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins á seinasta ári. Áslaug segir ákvörðunina ekki vera beina afleiðingu tapsins en að augljóst sé að önnur staða væri uppi hefði hún borið sigur úr bítum. Flokkinn segir Áslaug í góðum höndum. „Sjálfstæðisflokkurinn er í góðum höndum og ég hef tröllatrú á því að það sem gerist sé eitthvað sem hefði átt að gerast. Sjálfstæðisflokkurinn er í sókn undir forystu Guðrúnar og það eru mörg verkefni fram undan.“ Áslaug var gestur í Kastljósi kvöldsins. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni hér fyrir neðan. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sagði í morgun af sér þingmennsku eftir að hafa setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í áratug. Hún segir að stjórnmál ættu ekki endilega að vera ævistarf fólks, mikilvægt sé að hleypa ungum að.

Go to News Site