Collector
Tveir skjálftar yfir 3 að stærð við Þórisjökul | Collector
Tveir skjálftar yfir 3 að stærð við Þórisjökul
Fréttastofa RÚV

Tveir skjálftar yfir 3 að stærð við Þórisjökul

Jörð hefur skolfið við Þórisjökul í kvöld.RÚV / Einar Rafnsson Tveir skjálftar yfir þremur að stærð urðu norðvestan við Þórisjökul laust eftir klukkan 23 í kvöld. Samkvæmt fyrstu mælingum Veðurstofunnar var stærð skjálftanna 3,8 og 3,3. Þeim hafa fylgt nokkrir minni eftirskjálftar. Að sögn Steinunnar Helgadóttur náttúruvársérfræðings hefur verið nokkuð stöðug virkni á þessum slóðum síðustu vikur. Líklegast þykir að skjálftarnir hafi orðið vegna spennulosunar í jarðskorpunni.

Go to News Site