Collector
Átta drepnir í loftárásum Ísraelshers á Gaza | Collector
Átta drepnir í loftárásum Ísraelshers á Gaza
Fréttastofa RÚV

Átta drepnir í loftárásum Ísraelshers á Gaza

Átta voru drepnir í loftárásum Ísraelshers á Gaza í morgun. Þetta hefur AFP-fréttaveitan eftir talsmanni almannavarna í Palestínu. Sjö voru drepnir í árásum á íbúðarhúsnæði og einn í árás á Al-Shati flóttamannabúðirnar. Al-Shifa sjúkrahúsið tók á móti 15 sem særðust í árásunum. Þrátt fyrir að vopnahlé milli Hamas-samtakanna og Ísraels hafi verið í gildi frá því í október eru árásir tíðar á Gazaströndinni. Heilbrigðisráðuneytið á Gaza segir að 936 hið minnsta hafi verið drepnir frá því að vopnahléð tók gildi. Helmingur Gaza lýtur yfirráðum Ísraelshers samkvæmt skilmálum vopnahléssamkomulagsins. Í síðustu viku fyrirskipaði Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hernum að ná yfirráðum yfir 70% Gazastrandarinnar.

Go to News Site