Collector
Heimsglugginn: Reiði vegna morðs í Bretlandi | Collector
Heimsglugginn: Reiði vegna morðs í Bretlandi
Fréttastofa RÚV

Heimsglugginn: Reiði vegna morðs í Bretlandi

Mikil reiði og deilur eru í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu á vettvangi hnífsstunguárásar þar sem helsærður ungur námsmaður var handtekinn. Lögreglan trúði yfirlýsingum morðingjans, sem sagðist hafa orðið fyrir kynþáttaníði, og handtók og handjárnaði Henry Nowak sem námsmanninn sem lést á staðnum. Reiði þegar myndband úr búkmyndavél var birt. Henry Nowak, 18 ára gamall háskólastúdent, var á heimleið að kvöldlagi í desember þegar 23 ára gamall sikki, Vickrum Digwa, veittist að honum með hnífi og stakk margoft. Bróðir Digwas hringdi í lögreglu og sagði bróður sinn hafa orðið fyrir rasískri árás. Þegar lögreglan kom á vettvang endurtók Digwa yfirlýsingar um að vera fórnarlamb Nowaks og lögreglumenn ræddu við hann en sinntu ekki Nowak sem var helsærður eftir hnífsstungurnar. Þó að Nowak hafi margítrekað sagt lögreglunni að hann hefði verið stunginn og gæti ekki andað var hann handjárnaður og handtekinn þar sem hann lá á götunni. Þegar myndband úr búkmyndavél lögreglu var birt fyrr í vikunni braust út mikil reiði vegna framkomu lögregluþjónanna. Efaðist um að Nowak hefði verið stunginn Í myndbandinu heyrist Nowak níu sinnum segja að hann geti ekki andað og fjórum sinnum segjast hafa verið stunginn. Lögregluþjónn heyrist segja að hann trúi því ekki; „ I don't think you have mate“. Jonathan Hinder, þingmaður Verkamannaflokksins sem er fyrrverandi lögreglumaður, sagði í fréttaskýringaþættinum Newsnight að viðbrögð lögreglu hefðu ekki verið í samræmi við reglur sem kvæðu á um að sinna skuli bráðahjálp fyrst af öllu. Morðinginn dæmdur í lífsíðarfangelsi Vickrum Digwa hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi og þarf að sitja á bak við lás og slá í að minnsta kosti 21 ár. Dómnum hefur verið áfrýjað vegna þess að ákæruvaldinu þykir hann of mildur. Bróðir og faðir Digwas hafa einnig verið handteknir og móðir hans ákærð fyrir að reyna að fela morðvopnið. Gagnrýna lögreglu en hvetja til stillingar Mark Nowak, faðir Henry Nowaks, las upp ávarp fyrir hönd fjölskyldunnar fyrir utan réttarsal eftir að dómurinn var kveðinn upp. Í ávarpinu er lögreglan harðlega gagnrýnd og kallað eftir rannsókn á viðbrögðum hennar. Mark Nowak hvatti einnig til stillingar og að morð sonar síns yrði ekki tilefni til æsinga og átaka. Mótmæli og óeirðir í Southampton Þrátt fyrir beiðni fjölskyldu Henry Nowaks var efnt til mótmæla við aðallögreglustöðina í Southampton þriðjudagskvöldið 2. júní. Meðal fundarmanna var Tommy Robinson, þekktur hægriöfgamaður, sem hefur setið í fangelsi fyrir kynþáttaníð. Til átaka kom er hópur reyndi að ganga að heimili fjölskyldu Vickrums Digwas. Nigel Farage hellir olíu á eldinn Nigel Farage, leiðtogi hægriþjóðernisflokksins Reform (Umbótaflokksins), sagði í yfirlýsingu að fólk ætti að reiðast og að lögreglan mismunaði fólki eftir uppruna, notaði silkihanska við litað fólk en kæmi fram af hörku við hvíta. Farage hefur verið sakaður um að hella olíu á eldinn og hundsa beiðni fjölskyldu Henry Nowaks sem hvetur til stillingar. Keir Starmer forsætisráðherra sagði í heitum umræðum í þinginu að ummæli Farage sýndu hvern mann hann hefði að geyma. Ný mið-vinstri stjórn í Danmörku Mette Frederiksen hefur myndað nýja mið-vinstri stjórn í Danmörku. Stjórnin hefur lofað miklum útgjöldum og skattalækkunum við misjafnlega hrifningu hagfræðinga. Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterne, verður áfram utanríkisráðherra. Hann kveðst hæstánægður með nýju stjórnina sem er minnihlutastjórn. Einingarlistinn (Enhedslisten), umhverfisflokkurinn Alternativet, tveir grænlenskir þingmenn og einn frá Færeyjum ætla að verja stjórnina falli. Ríkisstjórnin hyggst lækka matvælaverð og suma skatta og meðal aðgerða á Grænlandi er að lagður verður sæstrengur til Tasiilaq á Austur-Grænlandi. Hér má heyra Heimsglugga vikunnar Mikil reiði og deilur eru í Bretlandi vegna viðbragða lögreglu á vettvangi hnífsstunguárásar þar sem helsærður ungur námsmaður var handjárnaður og handtekinn. Þetta ræddi Bogi Ágústsson í Heimsglugganum og einnig nýja stjórn í Danmörku.

Go to News Site