Fréttastofa RÚV
Evolytes er tölvuleikur sem kennir krökkum stærðfræði með skemmtilegum leikjum. Leikurinn er notaður við kennslu í grunnskólum víðs vegar um landið. Spilarar velja sér eina af fjórum aðalpersónum og ferðast um fjölbreyttan heim þar sem þeir hitta furðuleg og skondin dýr. Dýrin hafa mikinn áhuga á stærðfræðikeppnum og með því að sinna þeim vel, gefa þeim að borða og leika við þau, geta þau þróast og tekið á sig nýjar myndir,“ segir Sigurður Gunnar Magnússon, einn af stofnendum og leikjahönnuður Evolytes. Í vor var haldin hugmyndasamkeppni undir heitinu Fjölskyldan mín og gátu krakkar sent inn teikningu af sínum eigin evólýtum, sem eru persónur í tölvuleiknum. Dregið var í keppninni 8. maí og krakkarnir í efstu tíu sætunum hittust í verslun Pennans í Smáralind til að fagna árangrinum. Sigurvegarinn fékk sinn eigin evolýta inn í leikinn. Sigurvegarinn í ár er Hafþór Þrándarson í Krikaskóla. Hann teiknaði steinafjölskyldu og meðlimir hennar heita Bergur, Bergsteinn, Steinberg, Steinbítur og Steini. Hafþór er ánægður með sigurinn en veit ekki alveg hvernig hann fékk hugmyndina að steinafjölskyldunni, hann safnar ekki steinum eða neitt slíkt.
Go to News Site