Collector
Mótmæla ferðamannaparadís Kushners og félaga | Collector
Mótmæla ferðamannaparadís Kushners og félaga
Fréttastofa RÚV

Mótmæla ferðamannaparadís Kushners og félaga

Þúsundir mótmælenda komu saman í Tirana, höfuðborg Albaníu, þriðja daginn í röð í gær. Það kastaðist í kekki milli mótmælenda og lögreglu sem sprautaði úr vatnsbyssum á mannfjöldann. Efnt var til mótmælanna vegna áforma um byggingu á lúxusferðamannaparadís á verndarsvæði í landinu. Meðal fjárfesta er Affinity Partners, fyrirtæki tengdasonar Trumps Bandaríkjaforseta, Jared Kushners. Nokkur þúsund manns hafa síðustu daga mótmælt framkvæmdum við ferðamannaparadís á verndarsvæði í Albaníu. Tengdasonur Bandaríkjaforseta, Jared Kushner, er einn fjárfesta. Forsætisráðherrann segir að ekki verði hætt við áformin. Aleksandr Trajce, hjá náttúruverndarsamtökunum PPNA, segir í samtali við The Guardian að engin opinber umræða hafi verið um uppbyggingu á verndarsvæðinu, allt gegnsæi skorti og því viti almenningur lítið um málið. Hann segist aldrei hafa séð neitt þessu líkt á verndarsvæðum Albaníu. Farið sé á svig við öll lög. Reiði almennings hafi magnast þegar verktakar hafi girt svæðið af, ráðið öryggisfyrirtæki til að vera á verði, komið með þungavélar og farið að skemma gamla furuskóga til að ryðja leiðina fyrir vegi. Trajce leggur þó áherslu á að reiðin beinist að stjórnvöldum en ekki fjárfestunum. Vilja laða að fjárfesta Albanía er eitt fátækasta ríki Evrópu en hefur síðustu ár notið sífellt meiri vinsælda sem áfangastaður ferðamanna. Þar þykir verðlag gott og náttúran einstök. Yfirvöld leggja áherslu á að laða að fjárfesta og í framhaldinu efnameiri ferðamenn og segja því mikilvægt að ráðast í framkvæmdir sem þessar. Strandlengja landsins er að mestu leyti ósnortin og óttast fólk að efnamiklir fjárfestar geti eignast stóran hluta hennar. Hafa áhyggjur af griðasvæði fugla í útrýmingarhættu Áform Kushners og annarra fjárfesta eru að byggja ferðamannaparadís við hluta strandlengjunnar í suðurhluta Albaníu. Hún á að ná yfir hluta eyjunnar Sazan. Þarna er fyrir þjóðgarður og griðastaður um 200 fuglategunda sem sumar eru í útrýmingarhættu. Þar á meðal eru flamengóar. Fólk hefur einmitt veifað myndum af þeim fuglum á mótmælunum. Líffræðileg fjölbreytni á þessum slóðum þykir mikil og þar eru menningarminjar sem fólk óttast að skemmist í framkvæmdunum. Hugmyndin er að byggja nokkur hótel, auk íbúða og húsa til útleigu og smábátahöfn. Ivanka Trump, dóttir Bandaríkjaforseta og eiginkona Kushners, kom til Albaníu fyrr á árinu og fór um verndarsvæðið ásamt teymi arkitekta. Hún sagði frá því í hlaðvarpi David Senra á dögunum að þau hjónin hefðu fyrir tilviljun fundið staðinn. Þau hefðu verið að sigla þar á bát vinar síns, farið að synda og þá fundið staðinn. Forsætisráðherrann ætlar ekki að hvika Forsætisráðherra Albaníu, Edi Rama, hefur varið áformin og sagt þau mikilvæg til að geta fest landið í sessi sem ferðamannastað í hæsta gæðaflokki. Hann bauðst til að hitta mótmælendur en hefur sagt að það sé ekki möguleiki á að hætt verði við framkvæmdirnar svo lengi sem hann fái einhverju ráðið. Hann hefur lýst því yfir að framkvæmdirnar setji verndarsvæðið ekki í hættu. Spillingarsaksóknarstofnun Albaníu, SPAK, tilkynnti í vikunni að skoða ætti lagabreytingar frá 2024 um verndarsvæðin.

Go to News Site