Collector
Holskefla frá Hljóðrita og ýmislegt fleira | Collector
Holskefla frá Hljóðrita og ýmislegt fleira
Fréttastofa RÚV

Holskefla frá Hljóðrita og ýmislegt fleira

Júníus Meyvant – Don't mind Tónlistarmaðurinn Júníus Meyvant hefur sent frá sér lagið Don’t Mind sem er nútímalegt folk-lag og fjallar um að berjast í gegnum erfiðleika og vandamál án þess að missa sjónar á fegurðinni. Lag og texti er eftir Unnar Gísla Sigurmundsson sem syngur lagið og spilar á öll hljóðfæri. Árný Margrét – a Dream Tónlistarkonan Árný Margrét hefur sent frá sér frumsamið lag og ljóð sem fékk nafnið In a Dream. Árný Margrét syngur lagið auk þess að spila á flest hljóðfæri en Guðmundur Kristinn Jónsson spilar á bassa. Bogmil Font og Greiningardeildin – Gellur eru bestar Gellur eru bestar eftir Braga Valdimar Skúlason er nýtt lag frá Bogomil Font og Greiningardeildinni og það verður á breiðskífu sem kemur út í lok júní. Undiraldan fimmtudaginn 4. júní Útgáfan er með mesta móti þessa dagana og stór nöfn að skríða úr híði. Þar á meðal eru Júníus Meyvant, Kaleo, Árný Margrét og mörg fleiri. Stefán Hilmarsson – fyrir allt Tónlistarmaðurinn Stefán Hilmarsson hefur sent frá sér frumsamið lag, Þrátt fyrir allt, sem kemur út innan tíðar á breiðskífu sem heitir Ár og dagar. Þar nýtur hann aðstoðar margra af helstu spilurum bransans. Á móti sól – Okkar lag Hljómsveitin Á móti sól á 30 ára starfsafmæli og af því tilefni kemur út safnplata í haust ásamt því sem haldnir verða afmælistónleikar í Háskólabíói í október. Okkar lag er annað tveggja nýrra laga sem verða á plötunni. Það er eftir Magna og textinn er eftir Magna og Heimi. Memfismafían – Ég kenni þér um Ég kenni þér um er nýtt lag af væntanlegri plötu með Memfismafíunni. Sérstakur gestur í laginu er Björn Jörundur sem syngur hér með Sigurði Guðmundssyni. Lag og texti eru eftir Braga Valdimar en Guðmundur Kristinn Jónsson stýrði upptökum í Hljóðrita í Hafnarfirði. Sycamore Tree – Tangled Up Lagið og textinn All Tangled Up er eftir Gunna Hilmarsson verslunarmann og Ágústu Evu Erlendsdóttur söngkonu. Lagið vinna þau með Arnari Guðjónssyni og það fjallar um að vera stöðugt að að eltast við eitthvað meira, sem er oft ekki vitað hvað er í raun, en finna það með breyttu sjónarhorni. Undiraldan þriðjudaginn 2. júní Útgáfan er með mesta móti þessa dagana og stór nöfn að skríða úr híði. Þar á meðal eru Júníus Meyvant, Kaleo, Árný Margrét og mörg fleiri. Kaleo – Still No Good Það er farið að styttast í stórtónleika Kaleo á Þingvöllum og af því tilefni senda þeir frá sér nýja og breytta útgáfu af No Good sem heitir að sjálfsögðu Still No Good. Ásamt Kaleo kemur fram rjómabland íslenskra listamanna eins og Emelíana Torrini, Mugison, Hjálmar, GDRN og mörg fleiri. Flesh Machine – Taking My Time Hljómsveitin Flesh Machine er úr Reykjavík og hefur spilað blöndu af indie-tónlist og nýbylgju frá árinu 2022. Þeir eru nýbúnir að gefa út sína fyrsta stóru plötu, The Fool, sem kom út núna í lok maí. Marsibil – slakir Marsibil er nýlegur tónlistardúett sem sendi um mánaðamótin frá sér lagið Allir slakir, sem er frumsamið. Dúettinn er skipaður Unu Schram og Kára The Attempt sem hafa bæði verið áberandi undanfarin ár. Allir slakir er fyrsta lagið af væntanlegri plötu þar sem þau blanda saman hljóðheimum sínum. AAIIEENN – Zebra Knows Best á bak við verkefnið AAIIEENN, borið fram ei/en, er Hallmar Gauti Halldórsson. Hann er höfundur og flytjandi lagsins Zebra Knows Best sem er á plötunni Phonetically Ayen sem kom út um mánaðamótin, bæði á vínyl hjá Reykjavík Record Shop og á streymisveitum. Birna Eyfjörð – mig Birna Eyfjörð er höfundur og aðalflytjandi lagsins Leiddu mig. Hún starfar sem lagahöfundur og framleiðandi í Tónhyl þar sem hún tók lagið upp undir listrænni handleiðslu Þormóðs Eiríkssonar. Hljóðfærarleikarar í laginu, ásamt henni, eru Halldór Gunnar Pálsson Fjallabróðir á gítar og Jóhann Þór Bergþórsson á bassa. Greifarnir – Endalaust sumar Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan Greifarnir unnu Músíktilraunir árið 1986 og fóru í kjölfarið á sveitaballarúnt sem stóð lengi. Nú eru þeir í startholunum að fara aftur á rúntinn fyrir nýja kynslóð með nostalgíulaginu Endalaust sumar eftir Kristján Viðar Haraldsson. Falinn gjóður – Gölturinn Gabríel Þá er það nútíminn því hljómsveitin Falinn gjóður gerði sér lítið fyrir og sigraði í Músíktilraunum ársins. Tríóið var ekki lengi að skella sér í hljóðver og taka upp lagið Gölturinn Gabríel sem þeir segja að sé trufflusvínaprogg undir áhrifum frá Þursaflokknum og Frank Zappa.

Go to News Site