Fréttastofa RÚV
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir því úkraínska í Póllandi á morgun. Úkraína hefur ekki getað leikið í heimalandi sínu frá því að innrás Rússa í landið hófst. Leikurinn, sem er í undankeppni heimsmeistarakeppninnar 2027, fer því fram í Mielec. Mielec er í suðvesturhluta Póllands, í um 190 kílómetra fjarlægð frá landamærum Úkraínu. Leikmenn landsliðsins ræddu það hvernig er að mæta andstæðingum í fótboltaleik, en leikurinn er þó mun stærri en bara fótbolti fyrir andstæðinginn. Leikmenn og þjálfarinn Þorsteinn Halldórsson ræddu einnig andstæðinginn, úrslitaleikinn um betra umspilssæti, dagana í Póllandi og hvort að það sé kominn vísir að kynslóðaskiptum í landsliðinu. Viðtölin öll má sjá hér að neðan. Þurfa að koma grimmar til leiks Linda Líf Boama segir að það sé aldrei hægt að leggja þá staðreynd að það sé stríð í Úkraínu til hliðar. Hins vegar sé mikilvægt fyrir Ísland að ná upp sama orkustigi og þær úkraínsku. Þær séu tilbúnar að leggja allt í leikinn og stelpurnar geti ekki mætt eins og píslir. „Það er aldrei hægt að leggja þetta alveg til hliðar. En ef eitthvað er þá fórum við aðeins yfir þetta, þá kannski meira um grimmdina. Við getum ekkert mætt eins og einhver písl í þennan leik. Það er stríð heima hjá þeim. Þær eru með merki Úkraínu á bringunni og deyja fyrir landið sitt. Við berum virðingu fyrir því en reynum að ná sömu orku.“ Viðtalið við Lindu má sjá í heild sinni hér að neðan. Hún ræðir einnig góða byrjun sína í sænsku deildinni með Kristianstad. Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Úkraínu í undankeppni HM 2027. Andstæðingar Íslands leika í Póllandi vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Stelpunar bera mikla virðingu fyrir baráttu andstæðinganna en ætla þó að mæta þeim af fullum krafti. Forréttindi að geta spilað á heimavelli Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir segir að íslenska liðið beri mikla virðingu fyrir Úkraínu og þeirra baráttu. Ísland getur leikið á sínum heimavelli en það geta Úkraínukonur ekki. „Við áttum okkur á því að það eru forréttindi fyrir okkur að fá að spila og geta spilað á heimavelli. Þær geta það ekki, sem er auðvitað gríðarlega sorglegt. Maður finnur það alveg þegar maður mætir þeim að þær eru að spila fyrir eitthvað stærra en bara fótbolta. Auðvitað berum við gríðarlega mikla virðingu fyrir því. En þegar við mætum inn á völlinn erum við samt að fara að gera allt til að vinna leikinn. En auðvitað berum við mikla virðingu fyrir þeirri aðstöðu sem þær hafa heima hjá sér. Þær eru að standa sig gríðarlega vel,“ sagði Glódís. Viðtalið við Glódísi má sjá í heild sinni hér að neðan. Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Úkraínu í undankeppni HM 2027. Andstæðingar Íslands leika í Póllandi vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Stelpunar bera mikla virðingu fyrir baráttu andstæðinganna en ætla þó að mæta þeim af fullum krafti. Bera miklu virðingu fyrir Úkraínu Sandra María Jessen segir íslenska liðið bera mikla virðingu fyrir þeim úkraínsku. „Auðvitað er þetta eitthvað sérstakt og eitthvað sem maður er ekki að lenda í á hverjum degi. Maður ber rosalega mikla virðingu fyrir þessum stelpum og því sem þær eru að upplifa og ganga í gegnum.“ „Auðvitað er vont að vita hvað er í gangi þar, en við þurfum að einbeita okkur að fótboltaleiknum. Um leið og leikurinn er flautaður á þá erum við klárar. Við munum gera allt eins og í öllum öðrum leikjum til þess að vinna. En maður ber extra mikla virðingu fyrir þeim.“ Viðtalið við Söndru má sjá hér að neðan. Hún ræðir einnig hvort liðið líti á þetta sem úrslitaleik um betra umspilssæti. Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Úkraínu í undankeppni HM 2027. Andstæðingar Íslands leika í Póllandi vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Stelpunar bera mikla virðingu fyrir baráttu andstæðinganna en ætla þó að mæta þeim af fullum krafti. Finnur að þær eru berjast fyrir sitt land Hildur Antonsdóttir segist hafa fundið fyrir orkunni og samheldni í liði Úkraínu í fyrri leik liðanna. „Ég held að þetta hafi ekki áhrif á okkur beint. En þetta hefur gríðarleg áhrif á þær. Ég myndi halda að það sé mjög mikil samheldni í þeirra liði. Það var alveg í síðasta leik. Maður finnur alveg fyrir orkunni hjá þeim, að þær eru lið og berjast fyrir sitt land. Ég myndi segja að það væri frekar þannig, heldur en að þetta hafi áhrif á okkur,“ sagði Hildur Antonsdóttir. Allt viðtalið við hana má sjá hér að neðan. Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Úkraínu í undankeppni HM 2027. Andstæðingar Íslands leika í Póllandi vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Stelpunar bera mikla virðingu fyrir baráttu andstæðinganna en ætla þó að mæta þeim af fullum krafti. Þjálfarinn einbeitir sér að fótboltanum Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari gerir sér grein fyrir því að ástandið í Úkraínu hafi áhrif á andstæðinga. En þrátt fyrir það eru Úkraína, rétt eins og Ísland, að fara að keppa fótboltaleik. Þær hafi sömu markmið og Ísland. „Úkraína er bara að fara að spila fótboltaleik eins og við. Ég held að það sé ekkert öðruvísi. Auðvitað eru kannski einhvers konar aðrir hlutir sem hafa áhrif á þeirra líðan dagsdaglega. En þær eru að berjast um sömu hluti. Það er að komast í umspil og vera á góðum stað þar, og að komast í lokakeppni. Það er þeirra markmið alveg örugglega, eins og okkar.“ „Þetta er leikur inni á fótboltavelli þar sem andstæðingar eru að keppa og eru með sömu markmið.“ Viðtalið við Þorstein má sjá hér að neðan. Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Úkraínu í undankeppni HM 2027. Andstæðingar Íslands leika í Póllandi vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Stelpunar bera mikla virðingu fyrir baráttu andstæðinganna en ætla þó að mæta þeim af fullum krafti. Hreinn úrslitaleikur? Leikurinn hefst klukkan 16:00 á föstudag og er í beinni útsendingu á RÚV. Upphitun Stofunnar hefst 15:35. Ísland er í þriðja sæti riðilsins sem stendur. Stig gulltryggir þriðja sætið og þar með sæti Íslands í A-deild Þjóðadeildar fyrir næstu útgáfu hennar. Auk þess veitir þriðja sætið betra umspilssæti á HM 2027 sem fer fram í Brasilíu. Fjórða sætið fer mun erfiðari leið. Þetta er næstsíðasta umferð riðilsins, en Ísland mætir Spáni heima 9. júní. Hér má sjá stelpurnar ræða það hvort að þjálfarateymið og leikmenn stilli leiknum upp sem hreinum úrslitaleik. Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta mætir Úkraínu í undankeppni HM 2027. Andstæðingar Íslands leika í Póllandi vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Stelpunar bera mikla virðingu fyrir baráttu andstæðinganna en ætla þó að mæta þeim af fullum krafti. Staðan í riðlinum England - 12 stig - +9 í markatölu Spánn - 9 stig - +9 í markatölu Ísland - 3 stig - mínus fimm í markatölu Úkraína - 0 stig - mínus 13 í markatölu
Go to News Site