Fréttastofa RÚV
Skýrslan kom út fyrir helgi og var kynnt á opnum fundi á þriðjudag. Mann undirstrikar að hlutverk nefndarinnar hafi ekki verið að koma með meðmæli heldur aðeins greiningu. Hún segir helsta kost við evru vera aukinn stöðugleika. Hins vegar gæti upptaka evru verið krefjandi vegna íslenska vinnumarkaðsmódelsins. Sumir hafa bent á sveigjanleika krónunnar sem helsta styrkleika hennar. Það stuðli að gengislækkunum þegar efnahagsáföll dynja yfir og vinni gegn atvinnuleysi til að mynda. Mann telur að gengissveiflur krónunnar skili minni ávinningi fyrir atvinnu og útflutning en oft sé haldið fram, en að kostnaðurinn í formi verðbólgu, vaxta, áhættuálags og óstöðugleika sé viðvarandi og snerti allt hagkerfið. Rætt var við Catherine Mann í Kastljósi. Hér má sjá viðtalið í heild sinni.
Go to News Site