Collector
Iraola tekinn við Liverpool | Collector
Iraola tekinn við Liverpool
Fréttastofa RÚV

Iraola tekinn við Liverpool

Liverpool staðfesti í kvöld ráðningu Andoni Iraola sem stjóra karlaliðs félagsins í fótbolta en hann skrifar undir tveggja ára samning. Hollendingurinn Arne Slot stýrði liðinu í tvö ár en var rekinn síðasta laugardag og strax í kjölfarið fóru sögusagnir í gang um að Iraola tæki við. Þessi 43 ára Spánverji stýrði Bournemouth síðustu þrjú tímabil. Þar áður þjálfaði hann Rayo Vallecano og Mirandés á Spáni en þjálfaraferillinn hófst 2018 með AEK Larnaca í Kýpur. Iraola er Baski og lék 406 leiki fyrir Athletic Bilbao auk þess sem hann var tvö tímabil í New York City í Bandaríkjunum. Þá spilaði hann 7 landsleiki fyrir Spán og 9 fyrir Baskaland, sem þó er ekki hluti af FIFA né UEFA. Undir stjórn Iraola endaði Bournemouth í sjötta sæti úrvalsdeildarinnar í vetur og tryggði sér þannig sæti í Evrópudeildinni. Liðið leikur því í fyrsta skipti í sögunni í Evrópukeppni næsta tímabil. Þjóðverjinn Marco Rose hefur tekið við Bournemouth. Liverpool er eitt sigursælasta félag Englands og hefur 20 sinnum orðið Englandsmeistari, síðast í fyrra undir stjórn Slot. Í ár endaði liðið í fimmta sæti og rétt svo komst í Meistaradeildina. Spánverjinn Andoni Iraola er nýr knattspyrnustjóri karlaliðs Liverpool. Hann tekur við af Arne Slot sem var rekinn síðustu helgi. Iraola stýrði Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni undanfarin þrjú ár og kom því í Evrópukeppni.

Go to News Site