Collector
Tvær vindmyllur í Vaðölduveri risnar | Collector
Tvær vindmyllur í Vaðölduveri risnar
Fréttastofa RÚV

Tvær vindmyllur í Vaðölduveri risnar

Tvær vindmyllur af 28 hafa verið reistar á Vaðöldu fyrir ofan Búrfellsvirkjun. Yfirverkefnastjóri segir framkvæmdum miða vel og gerir ráð fyrir að fyrstu 14 vindmyllurnar verði komnar í gang fyrir árslok. Framkvæmdasvæðið á stærð við byggðarhluta Kópavogs Fyrsta vindorkuver landsins verður í Vaðölduveri á Þjórsár- og Tungnarársvæðinu og hófust framkvæmdir í síðasta mánuði. Framkvæmdasvæðið er 17 ferkílómetrar, á stærð við byggðarhluta Kópavogs. „Verkefnið hefur gengið bara mjög vel. Við byrjuðum þennan áfanga með flutningunum sem hófust í maí. Þeir hafa gengið vel. Svo fórum við að undirbúa hífingu á vindmyllum og það hófst fyrir rúmum tveim vikum síðan og núna eru tvær af þessum fjórtán sem við ætlum að reisa í ár risnar.“ Ein vindmylla jafn há og tvær Hallgrímskirkjur Vindmyllurnar eru 150 metra háar að meðtöldum spaða, en spaðahringurinn er tæplega eitthundrað og fjörtíu metrar að þvermáli. Ef við setjum þetta í samhengi þá er ein vindmylla jafn há og tvær Hallgrímskirkjur. Sigurgeir segir veður hafa verið hagstætt til hífinga, sem hafi stutt vel við framgang verksins. „Áskoranirnar sem við erum að fást við núna eru magn flutninga. Við erum búin að vera að flytja síðan um miðjan maí og verðum að flytja vindmyllur fram í lok júní, byrjun júlí. Og svo veðrið, það þarf að viðra vel. Það má ekki vera mikill vindur þegar þú ert að reisa sérstaklega blöðin. Og það þarf að læra á tempóið þar.“ Fjórtán vindmyllur komnar í rekstur fyrir árslok Til stendur að setja fyrstu vindmylluna í gang í lok ágúst og gerir Sigurgeir ráð fyrir að allar 14 verði komnar í rekstur fyrir árslok. Snemma á næsta ári verða fjórtán vindmyllur til viðbótar fluttar til landsins og reistar og er ráðgert að vindmyllurnar 28 verði komnar í fulla framleiðslu fyrir lok 2027. „Það eru 120 megavött sem við getum framleitt hérna. Ef þú horfir á það þá eru það í kringum 440 gígawattsstundir á ári sem hægt er að framleiða hérna. Og til þess að reyna að setja það í eitthvað samhengi þá er það eins og við séum að framleiða rafmagn fyrir svona 40% af heimilum á Íslandi.“ Framkvæmdum í Vaðöldveri, fyrsta vindorkuveri landsins, miðar vel, segir yfirverkefnastjóri. Tvær vindmyllur hafa risið á tæplega tveimur vikum.

Go to News Site