Collector
Gyrðir hlaut virt dönsk smásagnaverðlaun | Collector
Gyrðir hlaut virt dönsk smásagnaverðlaun
Fréttastofa RÚV

Gyrðir hlaut virt dönsk smásagnaverðlaun

Gyrðir Elíasson hlaut í dag Zinklar-verðlaunin 2026 . Það eru heiðursverðlaun sem veitt eru smásagnahöfundum. Verðlaunaféð nemur 100 þúsund dönskum krónum, sem eru um tvær milljónir íslenskra króna. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 2013. Þau féllu þá í skaut hins kunna danska höfundar Klaus Rifbjerg. Meðal fyrri verðlaunahafa eru Julian Barnes, Lydia Davies, Pia Juul, Judith Herman, Georgi Gospodinov og Liliana Colanzi, að því er segir í tilkynningu frá bókaútgáfunni Dimmu. „Við afhendingu verðlaunanna í Kaupmannahöfn 4. júní var sagt frá dönskum þýðingum á verkum Gyrðis og þýðandinn Erik Skyum-Nielsen, sem þýtt hefur 15 bækur eftir hann, ræddi við höfundinn um smásögur hans og smáprósa,“ segir þar enn fremur. Við þetta tilefni var fyrsta smásagnasafn Gyrðis, Bréfbátarigningin, endurútgefið á dönsku hjá bókaforlaginu Jensen & Dalgaard. Bókin var fyrst gefin út í Danmörku 1991.

Go to News Site