Collector
Bæjarfulltrúi dró sér tæpar 6 milljónir | Collector
Bæjarfulltrúi dró sér tæpar 6 milljónir
Fréttastofa RÚV

Bæjarfulltrúi dró sér tæpar 6 milljónir

Bæjarfulltrúi Raddar unga fólksins í bæjarstjórn Grindavíkur dró sér tæpar 6 milljónir króna úr sjóðum flokksins á síðasta kjörtímabili. Flokkurinn greinir frá málinu á Facebook . Þar segir að snemma á síðasta ári hafi grunur vaknað um að Sævar Þór Birgisson, þáverandi bæjarfulltrúi og gjaldkeri flokksins, hafi dregið sér fjármuni. Eftir nánari skoðun var ákveðið að kæra málið til lögreglu. Rannsókn málsins er lokið en ákveðið var að ljúka málinu með sátt um endurgreiðslu fjármunanna gegn því að kæran yrði dregin til baka. „Sævar var samvinnufús við rannsókn málsins og greiddi hann fjármunina að fullu til baka,“ segir í færslu Raddar unga fólksins. Flokkurinn bauð ekki fram í sveitarstjórnarkosningunum í síðasta mánuði og ákvað að verja fjármununum í uppbyggingu Grindavíkurbæjar. Flokkurinn hefur gefið 5,8 milljónir króna til kaupa á nýjum leiktækjum á skólalóð grunnskólans við Ásabraut. „Við erum stolt af þessari ákvörðun og vitum að þessir fjármunir munu nýtast börnum og fjölskyldum þeirra í Grindavík í mörg ár.“

Go to News Site