Fréttastofa RÚV
Hópur vísindamanna við Cambridge-háskóla hefur þróað nýja tegund bóluefnis með hjálp gervigreindar. Það er talið geta nýst til varnar fjölda veira og jafnvel komið í veg fyrir faraldra. Í frétt breska ríkisútvarpsins , BBC segir að þróun bóluefnisins sé enn á frumstigi. Það var hannað til að nýtast gegn öllum afbrigðum kórónuveiru, og aðrar veirur sem berast til dýra og gætu valdið faraldri. Ein helsta áskorunin við gerð bóluefna er að veirur geta stökkbreyst og afbrigði þeirra verið fjöldamörg. Hefðbundin bóluefni byggjast á nýlegri gerð veira hverju sinni. Rannsakendur tóku genamengi úr fjölda kórónuveira og létu gervigreind greina þau. Gervigreindin hannaði þá svokallaðan ofur-mótefnavaka sem á að geta þjálfað ónæmiskerfið til að verjast öllum mögulegum veirum í kórónufjölskyldunni – jafnvel þeim afbrigðum veirunnar sem enn eru ekki til. Þegar er byrjað að prófa bóluefnið á fólki og tæplega fjörutíu manns hafa fengið tilraunaskammt af því. Einn rannsakenda, Saul Faust, segir að áhrif bóluefnisins á ónæmiskerfið hafi verið lítilvæg en að niðurstöðurnar séu jákvæðar. Bóluefnið, sem hannað sé með gervigreind, búi klárlega yfir miklum möguleikum. Næsta skref er að prófa bóluefnið á stærri hópi, eða tvö hundruð manns. Þá hefur rannsóknarteymið hafist handa við þróun ólíkra bóluefna gegn flensu og ebólu-veiru.
Go to News Site