Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið
Átta Íslendingar urðu vitni að því þegar eldur kom upp í bifreið í Rotterdam nú í kvöld. Atvikið átti sér stað nærri Blaak-samgöngumiðstöðinni. Fólkið telur líklegt að um íkveikju hafi verið að ræða.