Fréttastofa RÚV
Myndlistamaðurinn Magnús Pálsson var í dag útnefndur listamaður Fjarðabyggðar. Viðurkenningin var veitt í fyrsta sinn í dag. Athöfnin var í gamla barnaskólanum á Eskifirði og er hluti af Listahátíð Fjarðabyggðar sem hófst á mánudag. Magnús fæddist á Eskifirði 1929 og er einn af helstu áhrifavöldum íslenskrar nútímamyndlistar. Hann var að vonum ánægður með útnefninguna. „Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa því. En það er fjandi gaman,“ segir Magnús. Magnús bjó á Eskifirði fyrstu æviárin en fjölskyldan fluttist úr bænum þegar hann var á fjórða aldursári. „Mér finnst gaman að koma til Eskifjarðar því að Eskifjörður hefur alltaf lifað fyrir mér eins og sá staður þar sem ég á minn uppruna. Ég hef alltaf verið Eskfirðingur.“
Go to News Site